Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
22. mars 2010 /
Utanríkisráðuneytið
Afhending trúnaðarbréfs í Þýskalandi

Í dag afhenti Gunnar Snorri Gunnarsson Dr. Horst Köhler forseta Þýskalands trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Þýskalandi.
Á stuttum fundi eftir afhendingu var einkum rætt um þróun efnahagsmála á Íslandi, aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandingu og almenn samskipti ríkjanna.