Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
26. maí 2010 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Ráðherra fundar með Olli Rehn


Fundur með Olli Rehn
p-017059-00-01h

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra átti í gær fund með Olli Rehn sem fer með efnahags- og peningamál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Rædd var þróun efnahagsmála á Íslandi og framgangur efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda. Einnig vær rædd þróun efnahagsmála í Evrópusambandinu að undanförnu. Þá var fjallað um samskipti Íslands við ESB og aðildarumsókn Íslendinga að sambandinu.

Fundur með Olli Rehn





Var efnið hjálplegt?