Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
1. september 2010 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Fundir í Hollandi vegna Icesave-málefna
Viðræðunefndir Íslands, Bretlands og Hollands munu eiga fundi í Hollandi um Icesave-málefni í dag, 1. september, og 2. september. Fundirnir voru ákveðnir í kjölfar viðræðna sem fram fóru á Íslandi á milli sendinefnda landanna í byrjun júlímánaðar síðastliðinn.