Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
25. mars 2011 /
Atvinnuvegaráðuneytið
Blaðamannafundur um áætlun um losun gjaldeyrishafta
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið boðar til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu kl. 16 í dag. Á fundinum mun Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, kynna áætlun um losun gjaldeyrishafta, ásamt Má Guðmundssyni seðlabankastjóra. Bein útsending af fundinum verður á síðu efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, www.evr.is.