Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
29. apríl 2011 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Fréttatilkynning frá stjórn fornleifasjóðs
Stjórn fornleifasjóðs hefur lokið úthlutun styrkja úr
sjóðnum fyrir árið 2011. Fjárveiting til sjóðsins í ár var 17.200.000 milljónir
króna. Samtals bárust 45 umsóknir að þessu sinni að upphæð 73.249.840 króna.
Samtals 18.000.000
Stjórn fornleifasjóðs hefur lokið úthlutun styrkja úr sjóðnum fyrir árið 2011. Sjóðurinn var stofnaður skv. 24. grein þjóðminjalaga nr. 107/2001
Fjárveiting til sjóðsins í ár var 17.200.000 milljónir króna. Samtals bárust 45 umsóknir að þessu sinni að upphæð 73.249.840 króna.
Samþykktir voru styrkir til 16 aðila að upphæð 18.000.000 króna.
Nánari upplýsingar veitir: Ragnheiður Þórarinsdóttir
Eftirtaldir aðilar hlutu styrk að þessu sinni:
| Verkefni |
Styrkþegi | Upphæð |
|---|---|---|
| Áframhaldandi fornleifarannsókn að Skriðuklaustri | Dr. Steinunn Kristjánsdóttir, Skriðuklaustursrannsóknir |
3.000.000 |
| Fornleifauppgröftur í kirkjugarðinum á Hofsstöðum í Mývatnssveit |
Hildur Gestsdóttir, Fornleifastofnun Íslands ses. |
2.500.000 |
| Eyfirsk verstöð á barmi eyðileggingar, Siglunes | Birna Lárusdóttir o.fl. Fornleifastofnun Íslands ses. |
1.500.000 |
| Úrvinnsla fornleifarannsókna á miðaldakaupstaðnum á Gásum 2001-2006 | Haraldur Þór Egilsson, Minjasafnið á Akureyri. | 1.200.000 |
| Skagfirska kirkjurannsóknin, rannsókn á kirkjustöðum 1000-1500 | Guðný Zoëga, Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga. | 1.000.000 |
| Vatnsfjörður við Ísafjarðardjúp. Þverrfaglegar rannsóknir á höfuðbóli |
Garðar Guðmundsson o.fl. Fornleifastofnun Íslands ses. |
1.000.000 |
| Kuml í uppsveitum Borgarfjarðar |
Adolf Friðriksson, Fornleifastofnun Íslands ses. |
1.000.000 |
| Seljabúskapur á norðanverðu Snæfellsnesi |
Sindri Ellertsson Csillag, Fornleifafræðistofan |
1.000.000 |
| Kolkuóshöfn í Skagafirði |
Kristján Mímisson, Fornleifafræðistofan |
1.000.000 |
| Jaðarbyggðir á Suðurlandi |
Kristján Mímisson, Fornleifafræðistofan |
800.000 |
| Kínamúrar Íslands? Rannsóknir á Íslenskum forngörðum II |
Árni Ólafsson, Elín Ósk Hreiðarsdóttir og Stefán Ólafsson |
800.000 |
| Kirkjur Reykholts |
Guðrún Sveinbjarnardóttir |
800.000 |
| Úrvinnsla Sveigakotsrannsókna |
Orri Vésteinsson |
800.000 |
| Þróun og eyðing byggðar við Heklurætur |
Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Kristborg Þórsdóttir |
600.000 |
| Teikning gripa frá Sveigakoti og Hrísheimum |
Stefán Ólafsson |
500.000 |
| Póstskipið Phønix |
Ragnar Edvardsson, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum |
500.000 |
Stjórn fornleifasjóðs 8.apríl 2011