Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
31. ágúst 2011 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Námsorlof framhaldsskólakennara og stjórnenda framhaldsskóla

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2012-2013 þurfa að berast mennta- og menningarmálaráðuneytinu eigi síðar en 1. október næstkomandi.

Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2012-2013 þurfa að berast mennta- og menningarmálaráðuneytinu eigi síðar en 1. október næstkomandi. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.

Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um námsorlof skulu vera á rafrænu formi.

Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Ólafsson deildarstjóri framhaldsskóladeildar á skrifstofu menntamála í síma 545-9500

Var efnið hjálplegt?