Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30. janúar 2012 /
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Rannsóknir á starfi leikskóla
Fimm sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gera samning við Háskóla Íslands um rannsóknir á starfi leikskóla.
Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær og Seltjarnarnes hafa gert samstarfssamning við Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna við Háskóla Íslands (RannUng) um rannsóknarverkefni í leikskólum. Markmið samstarfsins er að auka þekkingu á leikskólastarfi í sveitarfélögunum og stuðla að auknum gæðum í leikskólastarfi. Um er að ræða samning til þriggja ára.