Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
19. maí 2012 /
Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra sækir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Chicago.

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, fer um helgina til Chicago þar sem haldinn verður fundur leiðtoga NATO ríkjanna. Í sendinefnd Íslands eru utanríkisráðherra, fastafulltrúi Íslands gagnvart NATO, og embættismenn frá forsætis- og utanríkisráðuneytum.  

Leiðtogarnir funda einnig með þátttökuríkjum í aðgerðum í Afganistan, svo og samstarfsríkjum bandalagsins.

Var efnið hjálplegt?