Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
17. september 2012 /
Atvinnuvegaráðuneytið
Opinber heimsókn utanríkisráðherra Kýpur
Steingímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköðunarráðherra, hitti utanríkisráðherra Kýpur Erato Kozakou-Marcoullis í morgun en ráðherrann er hér á landi í opinberri heimsókn. Á fundinum ræddu ráðherrarnir um stöðu landanna og mögulega samstarfsfleti milli þeirra. Um þessar mundir gegnir Kýpur formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins og var rætt um formennskutíð Kýpurs og viðræður Íslands við Evrópusambandið.