Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
26. september 2012 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Vaxtarsprotar í skólastarfi
Kynnt verða um 50 verkefni á öllum skólastigum á ársþingi
Samtaka áhugafólks um skólaþróun
Ársþing Samtaka áhugafólks um skólaþróun verður haldið í Lækjarskóla í Hafnarfirði 9.–10. nóvember 2012. Þingið er að þessu sinni haldið í samvinnu við Sprotasjóð mennta- og menningarmálaráðuneytis. Kynnt verða tæplega 50 þróunarverkefni frá öllum skólastigum sem fengið hafa styrk úr Sprotasjóði á undanförnum árum. Haldin verða tvö framsöguerindi og síðan unnið í málstofum þar sem verkefni verða kynnt og rædd.
- Nánari upplýsingar áwww.skolathroun.is