Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
10. október 2012 /
Dómsmálaráðuneytið
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Laugardalshöll frá og með 10. október
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum embættis sýslumannsins í Reykjavík færist úr Skógarhlíð 6 yfir í Laugardalshöll frá og með miðvikudeginum 10. október.
Opið verður alla daga frá kl. 10:00–22:00 fram að kjördegi. Á kjördag verður opið frá kl. 10:00–17:00 fyrir þá kjósendur sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu.