Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
13. nóvember 2012 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið
Umsóknarfrestur um styrki vegna velferðarverkefna rennur út 20. nóvember
Velferðarráðuneytið auglýsti þann 19. október sl. eftir umsóknum um styrki frá félagasamtökum sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins og njóta ekki framlaga á fjárlögum. Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur er til miðnættis 20. nóvember næstkomandi.