Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
21. janúar 2013 /
Forsætisráðuneytið

Heillaóskir til forseta Bandaríkjanna

Forsætisráðherra hefur sent Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, kveðjur og hamingjuóskir fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands, í tilefni af innsetningu hans í forsetaembættið næsta kjörtímabil.

Í bréfi sínu áréttar forsætisráðherra langvarandi vinasamband þjóðanna og áherslur beggja á lýðræðisleg gildi í samstarfi þeirra.

Var efnið hjálplegt?