Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
20. mars 2013 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Barnamenningarsjóður
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Barnamenningarsjóði. Umsóknarfrestur er til 11. apríl 2013.
Sjóðurinn starfar samkvæmt reglum um barnamenningarsjóð nr. 594/2003. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði barnamenningar. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.
Sjóðurinn hefur úthlutað styrkjum árlega frá árinu 1995 og hefur mennta- og menningarmálaráðuneyti annast umsýslu hans. Frá og með árinu 2013 fer Rannís með umsýslu sjóðsins.
- Rafræn umsóknareyðublöð og leiðbeiningar fyrir umsækjendur eru hjá Rannís.
- Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga, [email protected], sími 525 5813. Sjá einnig á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis