Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
18. júní 2013 /
Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra fundar með forsætisráðherra Svíþjóðar
Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á fund með Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar á morgun, 19. júní.
Svíar gegna þetta árið formennsku í norrænu ráðherranefndinni, en Ísland tekur við því hlutverki um áramót. Svíar hafa einnig nýlega lokið tveggja ára formennsku í Norðurskautsráðinu.