Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
20. ágúst 2013 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Auglýst eftir umsóknum um styrki til atvinnuleikhópa og starfslauna listamanna
RANNÍS hefur tekið að sér umsýslu fyrir sjóði á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Auglýst var 17. ágúst sl. eftir umsóknum um styrki til atvinnuleikhópa og starfslauna listamanna. Þá var auglýst eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði 14. ágúst sl.
Samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur RANNÍS tekið að sér umsjón með innlendum sjóðum á sviði menntunar, menningar, íþrótta og æskulýðsmála frá og með árinu 2013. Um er að ræða eftirtalda sjóði og stuðningsaðgerðir:
- Barnamenningarsjóður
- Íslenskukennsla fyrir útlendinga
- Íþróttasjóður
- Norrænir námsmannastyrkir
- Orlofssjóður framhaldsskóla
- Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara
- Starfsemi atvinnuleikhópa
- Starfslaun listamanna
- Tónlistarsjóður
- Vinnustaðanámssjóður
- Þróunarsjóður námsgagna
- Æskulýðssjóður
Allar upplýsingar um sjóðina og auglýsingar eftir umsóknum eru á vef Rannís.