Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
27. ágúst 2013 /
Atvinnuvegaráðuneytið
Ný stjórn Samkeppniseftirlitsins

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur skipað nýja stjórn Samkeppniseftirlitsins til næstu fjögurra ára.
Formaður stjórnarinnar er Kristín Haraldsdóttir forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar lagadeildar HR og auk hennar eru aðalmenn í stjórn þau Elmar Hallgríms Hallgrímsson lektor við HÍ og Guðrún Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri LÍN.
Varamenn eru þau Eyvindur Grétar Gunnarsson, Runólfur Þór Sanders og Valgerður Rún Benediktsdóttir