Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
4. febrúar 2014 /
Heilbrigðisráðuneytið
Umsóknir um styrki úr Lýðheilsusjóði

Styrkir úr Lýðheilsusjóði fyrir árið 2014 hafa verið auglýstir lausir til umsóknar. Óskað er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til heilsueflingar og forvarna á sviði áfengis- og vímuvarna, tóbaksvarna, heilbrigðari lifnaðarhátta og geðræktar.
Hlutverk lýðheilsusjóðs er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu og hefur þann tilgang að stuðla að heilsueflingu og forvörnum.