Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
5. mars 2014 /
Utanríkisráðuneytið

Veftímaritið Green Growth the Nordic way

Tímaritið er gefið út af Norrænu ráðherranefndinni og má nálgast á heimasíðunni nordicway.org. Í tímaritinu, sem kemur út annan hvern mánuð, er fjallað um mál sem tengjast sjálfbærri þróun og grænum hagvexti.
Í nýjasta tölublaðinu er m.a. fjallað um formennskuverkefni Íslands, NordBio (norræna lífhagkerfið) og sjálfbærni í samgöngum. 


Á heimasíðunni má nálgast nýjasta tölublaðið, ásamt eldri tölublöðum, án endurgjalds. 

Var efnið hjálplegt?