Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
4. desember 2014 /
Forsætisráðuneytið
Nýr innanríkisráðherra í heimsókn

Ólöf Nordal, nýskipaður innanríkisráðherra, átti fund með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra í Stjórnarráðinu í dag að afloknum ríkisráðsfundi á Bessastöðum þar sem skipun Ólafar var staðfest.
Sigmundur Davíð gengdi embætti dómsmálaráðherra í innanríkisráðuneytinu frá 26. ágúst til dagsins í dag, að Ólöf tekur við. „Það er mikill fengur að því að fá Ólöfu í ríkisstjórnina,“ sagði Sigmundur Davíð.