Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
19. mars 2015 /
Utanríkisráðuneytið
Ágúst Bjarni til tímabundinna verkefna
Ágúst Bjarni Garðarsson hefur verið ráðinn til að sinna tímabundnum verkefnum á skrifstofu utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar. Ráðning Ágústs Bjarna stendur í einn mánuð og hóf hann störf í gær, 18. mars.
Ágúst Bjarni er 27 ára stjórnmálafræðingur að mennt og leggur nú stund á MPM nám við Háskólann í Reykjavik. Hann er jafnframt formaður Sambands ungra framsóknarmanna og oddviti flokksins í Hafnarfirði.