Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
11. apríl 2016 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Mennta- og menningarmálaráðherra tekur þátt í ráðherraráðstefnu á vegum Evrópuráðsins
Á ráðstefnunni verður sérstaklega rætt um hlutverk menntunar við að styrkja lýðræði
Yfirskrift ráðherraráðstefnunnar er á ensku „Securing democracy through education” - The development of a Reference Framework of Competences for Democratic Culture (Að styrkja lýðræði með menntun – þróun hæfnisviðmiða fyrir lýðræðismenningu). Ráðstefnan hófst í dag og lýkur á morgun, 12. apríl.

Yfirskriftin lýsir meginumræðuefni ráðstefnunnar en að auki verður rætt um árangur af gildandi menntastefnum, námskrám og menntun í lýðræðismenningu og borgaravitund, einkum með tilliti til þess að berjast gegn ofbeldisfullum öfgastefnum og hryðjuverkastarfsemi.
Gert er ráð fyrir um 200 þátttakendum frá 50 ríkjum.