Vorfundur mennta- og menningarmálaráðherra, starfsmanna ráðuneytisins og skólameistara var haldinn í dag
Árlegur samráðsfundur ráðuneytis og skólameistara var
haldinn í dag. Að þessu sinni sátu fundinn einnig fulltrúar
Menntamálastofnunar. Eftir ávarp Illuga Gunnarssonar mennta- og
menningarmálaráðherra greindi Ásta Magnúsdóttir ráðuneytisstjóri frá breytingum
á starfsemi ráðuneyta í kjölfar nýrra laga um opinber fjármál og hvaða áhrif
það hefði á stofnanir ráðuneytisins. Fjármál framhaldsskólanna eru jafnan rædd á þessum
fundum ráðuneytisins og skólameistaranna og svo var einnig núna. Þá var farið
yfir reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins. Sjónarhorn skólameistara
voru kynnt bæði eftir kynningu ráðuneytisins á fjármálum og reglugerðinni.
Fundinum lauk svo með almennum umræðum.