Út er komið fyrsta bindið af sex af skjölum Landsnefndarinnar fyrri frá árunum 1770-1771. Eiríkur G. Guðmundsson þjóðskjalavörður afhenti Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra og Mette Kjuel Nielsen sendiherra Dana á Íslandi fyrstu eintök bókarinnar
Til að fagna útgáfu bókarinnar var efnt til athafnar í Viðey, hátíðasal Þjóðskjalasafnsins,
að viðstöddum gestum og starfsfólki safnsins. Bókin
er gefin út í samstarfi Þjóðskjalasafns, Sögufélags og danska
ríkisskjalasafnsins og stefnt er að því að verkið verða gefið út í sex bindum á næstu þremur
árum.
Landsnefndin fyrri var þriggja manna nefnd á
vegum konungs sem ferðaðist um Ísland í eitt og hálft ár og safnaði upplýsingum
um land, þjóð og aðstæður í samfélaginu. Í bókinni birtast uppskriftir af
skjölum, sem íslenskur almenningur skrifaði til nefndarinnar og lýsti kjörum
sínum. Sjá nánar á vef Þjóðskjalasafns.