Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
3. júní 2016 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Læsissáttmáli
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Heimili og skóli – landssamtök foreldra innsigluðu með samningi í janúar sl. samkomulag um læsissáttmála fyrir foreldra. Með innleiðingu hans er höfðað til samtakamáttar og samábyrgðar foreldra.
Starfsfólk Heimilis og skóla mun kynna foreldrum og skólafólki um allt land sáttmálann næsta haust og sendu því nýverið kynningarbréf til grunnskóla, fræðslufulltrúa og fulltrúa foreldra.