Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
6. júní 2016 /
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skipuð skrifstofustjóri lögfræðisviðs

{image.Description}
Lilja Sturludóttir

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Lilju Sturludóttur til að gegna embætti skrifstofustjóra lögfræðisviðs.

Lilja lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og meistaraprófi í þjóðarrétti frá Háskólanum í Lundi árið 1998. Hún hefur starfað í fjármála- og efnahagsráðuneytinu síðan árið 2001, fyrst sem sérfræðingur á tekju- og lagaskrifstofu og síðar sem fulltrúi ráðuneytisins í Brussel. Frá árinu 2010 hefur hún verið staðgengill skrifstofustjóra lögfræðisviðs.

Embættið var auglýst í mars sl. og sóttu 6 um.

Var efnið hjálplegt?