Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
11. október 2016 /
Dómsmálaráðuneytið

Kjörstöðum fjölgað vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar

10. október bættust við sex kjörstaðir í umdæmi sýslumannsins á Suðurlandi. Áður höfðu sýslumennirnir á Norðurlandi vestra og á Austurlandi auglýst aukna þjónustu í samvinnu við sveitarfélög. Fleiri sýslumannsembætti munu bætast í hópinn þegar nær dregur kosningum.

Upplýsingar um kjörstaði vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu eru uppfærðar reglulega á vefsíðu sýslumanna .


Var efnið hjálplegt?