Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
10. janúar 2017 /
Forsætisráðuneytið
Ríkisráðsfundir á Bessastöðum miðvikudaginn 11. janúar 2017
Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til tveggja funda á Bessastöðum miðvikudaginn 11. janúar 2017. Hefst fyrri fundurinn kl. 12:00 þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra mun bera upp lausnarbeiðni fyrir ráðuneyti sitt til endurstaðfestingar. Seinni fundurinn hefst kl. 13:30 þar sem forseti Íslands mun skipa fyrsta ráðuneyti Bjarna Benediktssonar.