Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
16. janúar 2017 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið

Breyttar reglur um Æskulýðssjóð

Nú er aðeins úthlutað úr sjóðnum tvisvar á ári

Í desember 2016 voru auglýstar á vef Stjórnartíðinda reglur um breytingar á reglum nr. 60/2008 um Æskulýðssjóð. Þar kemur fram að í stað þess að auglýst sé eftir styrkjum fjórum sinnum á ári verður auglýst tvisvar á ári og umsóknarfrestir 15. febrúar og 15. október. Sjá nánar á vef Rannís sem hefur umsýslu sjóðsins með höndum.

Var efnið hjálplegt?