Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
5. nóvember 2018 /
Brynjar Sigurðarson verðlaunaður
Hönnuðinum og listamanninnum Brynjari Sigurðarsyni voru í gær veitt hin virtu Torsten & Wanja Söderberg-verðlaun við hátíðlega athöfn í Röhsska safninu í Gautaborg. Verðlaunin hljóða upp á 1.000.000 sænskra króna og eru þau þar með stærstu hönnunarverðlaun í heimi með tilliti til upphæðar. Sendiherra Íslands var á meðal viðstaddra.