21. ágúst 2026 /
Heilbrigðisráðuneytið

Úrskurður nr. 13/2026

Úrskurður nr. 13/2026

Föstudaginn 21. ágúst 2026 var í heilbrigðisráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R

 

Með kæru, dags. 8. október 2025, kærði […] tannlæknir, hér eftir kærandi, málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmáli sem endaði með áliti, dags. 17. júlí 2025.

Kærandi krefst þess að málsmeðferð embættis landlæknis í málinu verði ógild og málið sent til meðferðar að nýju hjá landlækni.

Málið er kært á grundvelli 6. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, og barst kæran innan kærufrests.

Meðferð málsins hjá ráðuneytinu

Ráðuneytinu barst kæra frá kæranda þann 8. október 2025. Ráðuneytið óskaði eftir umsögn embættis landlæknis um kæruna daginn eftir og var frestur gefinn til 30. október. Að beiðni embættisins var fresturinn framlengdur til 6. nóvember en umsögn embættisins barst ráðuneytinu 7. nóvember. Með tölvupósti 20. nóvember óskaði ráðuneytið eftir athugasemdum kæranda við umsögn embættis landlæknis. Athugasemdir kæranda við umsögn embættis landlæknis bárust ráðuneytinu 2. desember 2025. Lauk þá gagnaöflun og var málið tekið til úrskurðar.

Málsatvik

Með bréfi, dags. 8. nóvember 2022, barst embætti landlæknis kvörtun vegna heilbrigðisþjónustu kæranda. Upphaf málsins má rekja til þess að kvartanda var vísað af tannlækni til […], sérfræðings í munn- og kjálkaskurðlækningum, hér eftir X, sem setti í hana fjóra tannplanta. Í framhaldinu vísaði X kvartanda til kæranda vegna smíði plantastudds heilgóms/smellugóms á fjórum tannplöntum. Kvartandi leitaði til kæranda í september 2020 vegna þeirrar meðferðar.

Atvik málsins má rekja til þess að kvartandi hélt því fram að við mátun á heilgómi sem kærandi smíðaði fyrir hana hafi hún fundið fyrir óþægindum. Í kjölfarið var gómurinn sendur til lagfæringar en þrátt fyrir það héldu óþægindin áfram. Þremur vikum eftir afhendingu heilgómsins losnaði einn tannplanti. Í kjölfarið var nýr tannplanti settur í hans stað af X, en hann fjarlægður fimm vikum síðar vegna beintaps. Eftir það var heilgómurinn aðeins studdur af þremur tannplöntum.

Kvartandi hélt því fram að gómurinn hefði frá upphafi ekki passað sem skyldi og að þjónusta kæranda í tengslum við góminn hafi verið ófullnægandi. Að mati kvartanda fannst aldrei viðunandi lausn þrátt fyrir ítrekaðar uppákomur og enduraðgerðir vegna lausra tannplanta og tanngervis. Kvartandi taldi jafnframt að kærandi hefði aðeins að takmörkuðu leyti komið sjálf að framkvæmd verka við gerð og stillingar gómsins, heldur falið þau verkefni tannsmið og tanntæknum.

Með áliti, dags. 17. júlí 2025, komst embætti landlæknis að þeirri niðurstöðu að mistök og vanræksla hefðu átt sér stað við tannlæknismeðferð á tannlæknastofu kæranda. Niðurstaða landslæknis byggði m.a. á áliti óháðs sérfræðings með hliðsjón af athugasemdum kæranda og annarra meðferðaraðila.

Málsástæður kæranda

Í fyrsta lagi byggir kærandi á því að rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi hvað varðar þau atriði sem embætti landlæknis lagði til grundvallar við mat sitt, á því hvort kæranda hafi borið að veita kvartanda upplýsingar áður en meðferð var ákveðin og hvort henni hafi borið að stýra undirbúningi heildarmeðferðar.

Í öðru lagi byggir kærandi á því að óháður sérfræðingur sem embættið leitaði til við gerð umsagnar hafi ekki haft fullnægjandi gögn, m.a. um ástand gómfestingar við upphaf meðferðar hjá kæranda og um aðgerðir sem aðrir læknar höfðu þegar framkvæmt. Þá bendir kærandi á að í álitinu komi fram að ekki sé ljóst á hvaða stigi ákvörðun um meðferð hafi verið tekin þrátt fyrir að gögn liggi fyrir um það.

Í þriðja lagi byggir kærandi á að ákvörðun um ígræðslu tannplanta og val á plantastuddu tanngervi hafi verið tekin af X í samráði við kvartanda, áður en kvartandi kom til kæranda til áframhaldandi meðferðar. Vísar kærandi til gagna málsins, m.a. bréf X til embættis landlæknis frá 5. febrúar 2022 og umfjöllunar í áliti embættisins, þar sem fram kemur að ákvörðun um plantastuddan heilgóm á fjórum tannplöntum hafi verið tekin áður en kvartanda var vísað til kæranda til að ljúka smíði tanngervis. Embætti landlæknis hafi þ.a.l. ranglega beint ábyrgð á heilbrigðisþjónustunni og áliti landlæknis að henni.

Í fjórða lagi mótmælir kærandi þeirri niðurstöðu embættisins að óumdeilt sé að kvartandi hafi verið óánægð frá upphafi. Vísar kærandi til þess að við afhendingu 25. janúar 2021 hafi tanngervið passað sem skyldi. Síðar hafi planti losnað, sem að mati kæranda kunni að skýra síðari upplifun kvartanda af óstöðugleika. Kærandi telur jafnframt að umsögn óháðs sérfræðings og ályktanir embættisins um óstöðugleika, bithæð og veltilínu séu ekki byggðar á fullnægjandi gögnum, enda hafi mat óháða sérfræðingsins farið fram nærri þremur árum eftir afhendingu tanngervisins og aðstæður þá verið breyttar vegna frekari aðgerða.

Í fimmta lagi byggir kærandi á að rannsókn hafi verið ófullnægjandi um verkaskiptingu á tannlæknastofu hennar. Embættið hafi á einum stað í álitinu talið óljóst af sjúkraskrárfærslum hvaða hlutar meðferðar hafi verið í höndum tannlæknis, tannsmiðs eða tanntækna en síðar í álitinu fullyrt að tanntæknar hafi sinnt umtalsverðum meðferðarþáttum á síðari stigum meðferðarinnar.

Umsögn embættis landlæknis

Í fyrsta lagi kemur fram í umsögn embættis landlæknis að málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar hafi verið fylgt í hvívetna undir meðferð málsins. Tekur embættið fram að kæranda hafi á öllum stigum málsmeðferðar verið gefinn kostur á að koma að andmælum sínum, meðal annars við umsögn óháðs sérfræðings sem leitað var til í málinu.

Í öðru lagi tekur embætti landlæknis fram að samkvæmt lögum nr. 55/2009, um sjúkraskrár, beri heilbrigðisstarfsmanni að færa í sjúkraskrá hvað eina sem snertir meðferð þess sjúklings sem heilbrigðisstarfsmaður hefur til meðferðar hverju sinni. Í umsögninni er tekið fram að færsla í sjúkraskrá miði að því að tryggja réttaröryggi sjúklinga og vernda heilbrigðisstarfsmenn gagnvart óréttmætum kvörtunum. Auk þessa er tekið fram að skortur á skráningu í sjúkraskrá sé almennt metin sjúklingi í vil.

 

Í þriðja lagi tekur embætti landlæknis fram að kærandi hafi borið ábyrgð á þeirri meðferð sem laut að kvartanda, sbr. álit landlæknis. Í umsögninni er jafnframt tekið fram að það að taka við sjúklingi og halda áfram meðferð, hvort sem um er að ræða áframhald fyrri meðferðar eða nýja meðferð, leysi heilbrigðisstarfsmann ekki undan ábyrgð á fullnægjandi upplýsingagjöf um mögulega fylgikvilla meðferðarinnar. Að mati embættisins fullnægði kærandi ekki þeirri skyldu að tryggja að kvartandi væri upplýst um þá meðferðarkosti sem henni stóðu til boða. Þá hafi kærandi ekki tekið faglega ákvörðun um að endurmeta þá meðferðarleið sem afmörkuð var í byrjun meðferðar, þrátt fyrir að henni hafi verið ljóst að hún bæri endanlega ábyrgð á framkvæmd hennar. Í ljósi þess tekur embættið fram að kærandi hafi ekki staðið undir þeim faglegu kröfum sem gerðar eru til hennar sem heilbrigðisstarfsmanns við meðferð sem hún bar ábyrgð á, og það að annar heilbrigðisstarfsmaður hafi hafið meðferðina leysi kæranda ekki undan þeirri ábyrgð.

Í fjórða lagi tekur embætti landlæknis fram að um flókna meðferð hafi verið að ræða og að afrakstur hennar hafi verulega þýðingu til lengri tíma fyrir kvartanda. Embættið telur að sá tími sem leið frá afhendingu smellugómsins og þar til óstöðugleiki kom fram, þremur vikum síðar, og síðan viku eftir uppherslu, gefi ekki tilefni til þeirrar ályktunar að kvartandi hafi verið ánægð með meðferðina og að undirbúningur kæranda hafi verið fullnægjandi. Niðurstaða embættisins var að plantinn hefði verið óstöðugur frá uppsetningu sem hafi valdið þeim afleiðingum sem lýst er í gögnum málsins. Í því sambandi vísar embættið til umsagnar óháða sérfræðingsins þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að meðferð sé faglega unnin frá upphafi til enda.

Athugasemdir kæranda við umsögn embættis landlæknis

Í fyrsta lagi bendir kærandi á að umsögn embættisins sé reist á öðrum forsendum en álit þess í málinu. Í áliti embættisins hafi verið lagt til grundvallar að kærandi hefði ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt 5. gr. laga um réttindi sjúklinga, einkum þar sem hún hefði ekki veitt kvartanda fullnægjandi upplýsingar né haft samráð við hana um val á meðferð. Einnig hafi kærandi borið ábyrgð á að stýra flókinni meðferð, þar á meðal greiningu og staðsetningu tannplanta með hliðsjón af tegund tanngervis. Í umsögn embættisins er hins vegar lögð áhersla á að kærandi hafi borið ábyrgð á meðferð kvartanda þar sem hún hafi tekið við sjúklingi og haldið áfram meðferð hans. Kærandi hafnar nýrri nálgun embættis landlæknis sem eigi sér ekki stoð í áliti landlæknis. Kærandi tekur fram að hún geti hvorki borið ábyrgð á upplýsingagjöf vegna ákvörðunar um val á meðferð né ákvörðun um staðsetningu tannplantna, enda hafi þær ákvarðanir verið teknar af öðrum tannlækni áður en kvartandi leitaði til kæranda. Af þeim sökum fær álit embættis landlæknis að því leyti ekki staðist.

Í öðru lagi ítrekar kærandi að álit landlæknis beri með sér að málið hafi ekki verið rannsakað með fullnægjandi hætti og það hafi haft afgerandi áhrif á niðurstöðu málsins. Af umsögn embættisins verði ráðið að það telji að með því að bjóða aðilum málsins að tjá sig á öllum stigum málsins sé rannsókn þess fullnægjandi. Kærandi mótmælir því. Gögn málsins beri með sér að óháður sérfræðingur hafi ekki haft fullnægjandi gögn við gerð umsagnar fyrir embættið. Þá hafi skoðun hennar á kvartanda farið fram löngu eftir að atvik þau, sem eru grundvöllur kvörtunar, áttu sér stað. Af slíkri skoðun sé aðeins hægt að draga takmarkaðar ályktanir. Þá beri álit embættisins með sér að mörgum spurningum sé ósvarað sem hafi skipt miklu máli að fá úr skorið fyrir útgáfu álits landlæknis.

Í þriðja lagi gerir kærandi athugasemd við umfjöllun embættisins um aðkomu tanntækna að meðferð kvartanda og að hún hafi verið ófullnægjandi. Kærandi byggir á að ekki hafi verið aflað nauðsynlegra gagna í því sambandi. Þar að auki gerir kærandi athugasemd við umsögn embættisins um samskipti og samvinnu kæranda við kvartanda í því skyni að viðhalda trausti, þar sem engin gögn liggja fyrir sem styðja þá niðurstöðu.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að kæru kæranda á málsmeðferð landlæknis í kvörtunarmáli samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, en samkvæmt 6. mgr. 12. gr. laganna er heimilt að kæra málsmeðferð landlæknis í kvörtunarmálum samkvæmt greininni til ráðuneytisins. Af þeim sökum verður ekki fjallað um málsástæður og athugasemdir kæranda sem snúa að efnislegri niðurstöðu álitsins enda verður hún ekki endurskoðuð af ráðuneytinu.

Lagagrundvöllur

Meðal hlutverka embættis landlæknis er að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum, sbr. e. liður. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu.

Í II. kafla laga um landlækni og lýðheilsu er fjallað um eftirlit með heilbrigðisþjónustu, en í 12. gr. laganna er kveðið á um kvörtun landlæknis. Samkvæmt 2. mgr. 12. gr. laganna er heimilt að beina formlegri kvörtun til embættisins vegna meintrar vanrækslu og mistaka við veitingu heilbrigðisþjónusta. Samkvæmt 5. mgr. 12. gr. skal landlæknir að jafnaði afla umsagnar frá óháðum sérfræðingi þegar kvörtun lýtur að meintri vanrækslu eða mistökum við sjúkdómsgreiningu eða meðferð. Er viðkomandi sérfræðingum, svo og landlækni sjálfum, rétt að kalla sjúkling til skoðunar ef sérstök ástæða þykir til. Þá gefur landlæknir út skriflegt álit að lokinni meðferð. Um meðferð kvartana gilda stjórnsýslulög að því leyti sem við getur átt samkvæmt sama ákvæði. Í 6. mgr. 12. gr. laganna er kveðið á um kæruheimild til ráðuneytisins en samkvæmt ákvæðinu er aðeins hægt að kæra málsmeðferð embættisins í kvörtunarmáli til ráðherra.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 ber stjórnvaldi að sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Í rannsóknarreglunni felst að stjórnvald skal, eftir atvikum að eigin frumkvæði, afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að taka efnislega rétta ákvörðun. Hvað telst nægjanleg rannsókn ræðst af eðli og umfangi máls hverju sinni. Mál telst nægjanlega upplýst þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem þörf er á með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem ákvörðun byggist á, sbr. athugasemdir við 10. gr. frumvarps þess sem varð að stjórnsýslulögum. Rannsóknarreglan er nátengd andmælareglu stjórnsýsluréttar, sbr. IV. kafla stjórnsýslulaga, en markmið reglnanna er meðal annars að tryggja að ákvarðanir stjórnvalda séu lögmætar og byggðar á réttum og málefnalegum forsendum.

Niðurstaða ráðuneytisins

Í máli þessu hefur ráðuneytið til skoðunar hvort að málsmeðferð embættis í kvörtunarmáli sem beindist að kæranda hafi verið lögum samkvæm enda verður eingöngu málsmeðferð embættis landlæknis kærð til ráðuneytisins í kvörtunarmáli samkvæmt 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu.

Niðurstaða landlæknis í áliti, dags. 17. júlí 2025, vegna heilbrigðisþjónustu kæranda til handa kvartanda er skipt niður í fimm þætti, I. ákvörðun um meðferð og upplýst samþykki, II. undirbúningur tanngervissmíði, III. aðkoma tanntækna að sérhæfðri meðferð, IV. færsla sjúkraskrár og V. samskipti og samvinna við sjúkling og viðhald trausts. Verður hér farið yfir hvern þátt álitsins að því marki sem ráðuneytið telur tilefni og nauðsyn til.

I. Ákvörðun um meðferð og upplýst samþykki

Í áliti embættis landlæknis kemur fram að ekki sé ljóst af gögnum málsins, á hvaða stigi ákvörðun um val á meðferð vegna tannleysis í efri góm var tekin. Embættið byggir á því, með hliðsjón af aðstæðum, að kæranda hafi borið að veita kvartanda ítarlegar upplýsingar um meðferðarvalkosti, möguleg vandamál, áhættu og ávinning þeirra í samræmi við 5. gr. laga, nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga. Skráningu um slíka upplýsingagjöf sé hins vegar ekki að finna í sjúkraskrá kvartanda. Af þeim sökum taldi embætti landlæknis að upplýsingaflæði og samvinna kæranda við sjúkling um val á meðferð hafi verið ábótavant.

Kærandi mótmælir þessari niðurstöðu. Hún bendir á að embættið hafi ekki aflað nauðsynlegra gagna um upphaf meðferðar, þrátt fyrir ábendingar hennar. Hún hafi ítrekað beint því til embættis landlæknis að afla sjúkraskrárgagna frá X, sem annaðist upphaf meðferðar kvartanda, og rannsaka þann þátt málsins, sem lítur að ákvörðun um val á meðferð kvartanda, með fullnægjandi hætti. Rannsókn málsins hafi verið ófullnægjandi að þessu leyti.

Líkt og fram hefur komið þá leitaði kvartandi í upphafi til annars tannlæknis, X, til þess að fá tanngervi í efri góm. Á blaðsíðu 32 í áliti landlæknis kemur fram að X hafi skoðað og metið tannvanda kvartanda. Í kjölfarið hafi hann, í samráði við kvartanda, tekið ákvörðun um að best væri að smíða laust tanngervi, þ.e. plantastuddan heilgóm á fjóra tannplanta í efri góm kvartanda. Í kjölfarið staðsetti X fjóra tannplanta í efri góm kæranda og vísaði kvartanda síðan áfram til kæranda, sem smíðaði laust tanngervi á tannplantana fjóra. Af álitinu verður ráðið að landlæknir leggi til  grundvallar að kærandi hafi ekki komið að meðferð kæranda fyrr en tannplantarnir voru komnir í efri góm kvartanda og meðferð hennar þá þegar ákveðin og hafin. Sækir það jafnframt stoð í umsögn X til embættis landlæknis, dags. 5. febrúar 2024.

Embætti landlæknis aflaði ekki sjúkraskrár kvartanda hjá X vegna þeirrar meðferðar sem hún hafði þegar notið hjá honum áður en hún leitaði til kæranda til áframhaldandi meðferðar. Af þeim sökum liggja ekki fyrir upplýsingar um hvernig tannplöntunum var komið fyrir, hvernig undirbúningi var háttað við ákvörðun um að velja laust tanngervi eða hvað réði staðsetningu tannplantanna. Þá liggur ekki fyrir hvort og þá hvaða samskipti áttu sér stað á milli X og kæranda áður en kvartandi leitaði til kæranda vegna áframhaldandi meðferðar. Þótt greinargerðir aðila liggi fyrir og af þeim megi draga upp ákveðna mynd af atvikum málsins, koma þær ekki í stað sjúkraskrár sjúklings. Þá liggja ekki fyrir gögn sem sýna að kærandi hafi, áður en tannplöntunum var komið fyrir, tekið að sér að stýra heildarmeðferð kvartanda eða borið ábyrgð á samhæfingu meðferðar X og fyrirhugaðrar tanngervasmíði.

Að mati ráðuneytisins hefði frekari gagnaöflun mögulega geta komið í veg fyrir allan vafa um hver tók ákvörðun um val á meðferð og á hvaða stigi kærandi kom fyrst að henni. Hins vegar liggur fyrir, og embætti landlæknis jafnframt gengið út frá því, að X hafi tekið ákvörðun, í samráði við kvartanda, um að laust tanngervi á tannplöntum væri besta lausnin fyrir kæranda. X hafi í kjölfarið sett upp tannplanta í efri góm kæranda og síðan beint henni áfram til kæranda til að fá smíðað tanngervi á tannplantanna. Þegar kvartandi leitaði til kæranda var því búið að framkvæma ígræðslu tannplantanna. Ekki verður ráðið af gögnum málsins og rökstuðningi í áliti landlæknis að sú aðgerð væri afturkræf þannig að val á meðferð væri raunhæfur möguleiki á þeim tímapunkti. Þá hefur landlæknir ekki rökstutt fyllilega hvernig það hafi verið skylda kæranda að afla upplýsts samþykkis fyrir meðferð sem þegar hafði verið framkvæmd af öðrum, eða að auðveldlega hefði mátt breyta meðferðinni eftir að tannplantar voru komnir í góm kvartanda.

Í ljósi þess sem hér að framan hefur verið rakið er það mat ráðuneytisins að ákvörðun um meðferð hafi þegar legið fyrir þegar kvartandi leitaði til kæranda til að ljúka verkinu, þ.e. að smíða plantastutt tanngervi, og að það hafi ekki verið raunhæfur kostur að breyta um meðferð þegar kvartandi leitaði til kæranda. Af þeim sökum verður ekki séð að það hafi verið skylda kæranda að kynna kvartanda fyrir öðrum meðferðarvalkostum á þeim tíma, afla upplýsts samþykkis hennar fyrir vali á þeirri meðferð sem X ákvað og hóf eða breyta henni. Ábyrgð á upplýsingagjöf um meðferðarkosti og val á meðferð hafi því verið í höndum X sem kvartandi leitaði til og tók ákvörðun um plantastuddan heilgóm og kom tannplöntum fyrir í efri góm kvartanda áður en hún leitaði til kæranda.

Með hliðsjón af framangreindu er það mat ráðuneytisins að niðurstaða embættis landlæknis, um að kærandi hafi borið ábyrgð á að afla upplýsts samþykkis kvartanda fyrir meðferðinni og síðan vali á meðferð, eigi sér ekki stoð í gögnum málsins. Þvert á móti bera gögnin með sér að ákvörðun um val á meðferð hafi verið tekin af X í samráði við kvartanda áður en hún leitaði til kæranda til áframhaldandi meðferðar. Kærandi getur ekki borið ábyrgð á heilbrigðisþjónustu sem hafði þegar verið veitt eða markaður farvegur.

Samkvæmt 6. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, er heimilt að kæra málsmeðferð embættis landlæknis í kvörtunarmálum til ráðherra. Um meðferð kvartana gildir 12. gr. laganna auk ákvæða stjórnsýslulaga eftir því sem við getur átt. Í 12. gr. laga um landlækni og lýðheilsu er ekki gerð krafa um að kvörtun vegna meintrar vanrækslu eða mistaka sé beint að einstökum heilbrigðisstarfsmönnum. Einstaklingar eigi þannig að geta kvartað yfir heilbrigðisþjónustu án þess að henni sé beint að einstaka heilbrigðisstarfsmönnum. Það er hluti af málsmeðferð kvörtunarmála að embætti landlæknis rannsaki kvörtun og að hverjum hún beinist. Þá getur embætti landlæknis einnig reynst nauðsynlegt að afla frekari gagna og upplýsa hvort kvörtun eigi í reynd að beinast að fleiri heilbrigðisstarfsmönnum en taldir eru upp í kvörtun og upplýsa um þátt hvers og eins. Af 12. gr. laganna má því ráða að gert sé ráð fyrir að embætti landlæknis beri ábyrgð á að aðild að kvörtunarmálum sé rétt.

Með vísan í framangreint er það niðurstaða ráðuneytisins að aðild að fyrsta þætti álitsins hafi ranglega verið beint að kæranda í málinu. Kærandi hafi ekki geta borið ábyrgð á þeim þáttum meðferðarinnar sem þegar var hafin og svo langt komin að óraunhæft var á þeim tímapunkti fyrir kæranda að endurmeta meðferðina eða afla upplýsts samþykkis fyrir henni. Þá var rannsókn málsins, hvað varðar fyrsta þátt álitsins, að mati ráðuneytisins ekki í samræmi við lög.

Þrátt fyrir framangreint er það mat ráðuneytisins að kæranda hafi borið, með hliðsjón af 5. gr. laga nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga, að veita kvartanda upplýsingar um framkvæmd og framvindu meðferðarinnar frá því að hún tók við henni, þ.e. við smíði smellugóms á tannplanta og þörf fyrir mögulegar umbætur eða breytingar á honum og kosti og galla smellugóma.

II.I Undirbúningur tanngervissmíði – stjórnun flókinnar meðferðar

Í álitinu kemst landlæknir að þeirri niðurstöðu að undirbúningi vegna tanngervissmíðinnar hafi verið ábótavant. Við ákvörðun um að smíða plantastuddan heilgóm í efri góm kvartanda þurfi að liggja fyrir fullnægandi greining á staðsetningu og stefnu tannplanta með hliðsjón af fyrirhugaðri tanngervissmíði, þar sem tegund tanngervis sé leiðbeinandi varðandi tannplantaísetningu. Þá þurfi einnig að meta pláss fyrir efni og tannplantaíhluti í ljósi þess að tegund tanngervis er leiðbeinandi varðandi tannplantaísetningu. Af gögnum málsins verður ráðið að í tilfelli kvartanda hafi slík greining ekki farið fram né heldur viðeigandi röntgenskoðun eða tannuppstilling í greiningartilgangi. Þess í stað hafi framkvæmdin verið sú að X hafi skoðað og metið tannvanda kvartanda. Ákvörðun hafi síðan verið tekin um að smíða laust tanngervi á fjóra tannplanta sem hafi verið græddir í efri kjálka kvartanda sem hafi síðan, að því loknu, verið vísað áfram til kæranda til að ljúka verkinu.

Var það mat embættis landlæknis að það væri á ábyrgð kæranda að stýra þessari flóknu og vandasömu meðferð þar sem nauðsynlegum undirbúningi heildarmeðferðar hafi verið ábótavant.

Kærandi mótmælir framangreindum niðurstöðum og byggir á því að ábyrgð hafi ranglega verið beint að henni. Kærandi hafi ítrekað undir rekstri kvörtunarmálsins bent á að ákvarðanir um meðferð, þar á meðal um ígræðslu tannplanta og val á plantastuddu tanngervi, hafi þegar verið teknar af X í samráði við kvartanda áður en kærandi kom að málinu líkt og komið hefur fram.

Líkt og áður greinir hefur embætti landlæknis ekki aflað sjúkraskrárgagna kvartanda hjá X. Fullnægjandi gögn liggja þ.a.l. ekki fyrir um samspil og mörk heilbrigðisþjónustunnar sem X veitti kvartanda annars vegar og heilbrigðisþjónustunnar sem kærandi veitti kvartanda hins vegar. Þrátt fyrir það gengur embætti landlæknis út frá því í áliti sínu að kvartanda verið vísað til kæranda eftir að ákvörðun hafi verið tekin um að smíða laust tanngervi, þ.e. plantastuddan heilgóm á fjóra tannplanta og eftir að tannplöntunum hafði verið komið fyrir í efri góm kvartanda. Sá undirbúningur sem embætti landlæknis gerir athugasemdir við að þessu leyti, þ.e. greining á staðsetningu og stefnu tannplantanna með hliðsjón af fyrirhugaðri tanngervissmíði, laut þannig að undirbúningi meðferðar sem fram fór áður en kærandi kom að meðferð kvartanda og var óafturkræfur þáttur í meðferð kvartanda.

Kvartandi leitaði samkvæmt gögnum málsins til X í upphafi vegna tannvanda sem hún glímdi við. X tók, í samráði við kvartanda, ákvörðun um að smíða laust tanngervi á fjóra tannplanta og framkvæmdi ísetninguna. X verður af þeim sökum að bera ábyrgð á þeirri meðferð kvartanda fram að tilvísun til kæranda, sem sá um smíði tanngervisins. Kærandi hafi þ.a.l. ekki haft möguleika á að stýra meðferðinni fyrr en í fyrsta lagi þegar kvartandi leitaði til hennar til smíði á tanngervinu, þegar meðferðinni hafði þegar verið markaður farvegur og búið að staðsetja tannplantanna í gómi kvartanda. Það hefði embætti landlæknis geta gengið úr skugga um með því að afla frekari sjúkraskrárgagna um meðferð kvartanda hjá X.

Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða ráðuneytisins að rannsókn embættis landlæknis hafi verið ófullnægjandi hvað þennan þátt málsins varðar. Eins og máli þessu er háttað hefur landlæknir ekki rökstutt með fullnægjandi hætti að kærandi eigi að bera ábyrgð á heilbrigðisþjónustu annars heilbrigðisstarfsmanns, sem ekki fellur undir stjórnunarheimildir hans. Aðild kæranda að þessu stigi heilbrigðisþjónustunnar verði ekki reist á því að kærandi hafi síðar tekið að sér að smíða tanngervi á tannplantanna. Til þess þurfi jafnframt að upplýsa um aðkomu hennar að fyrri stigum meðferðarinnar og grundvöll þess að telja hana bera faglega ábyrgð á ákvörðunum eða undirbúningi sem fram fór áður en hún kom að meðferð kvartanda.

II.II Undirbúningur tanngervissmíði – undirbúningur og framkvæmd tanngervissmíði

Hins vegar lýtur umfjöllun embættis landlæknis um smíði tanngervisins sjálfs að þeirri heilbrigðisþjónustu sem kærandi veitti kvartanda eftir að hún tók við áframhaldandi meðferð hennar.

Í áliti embættisins kemur fram að kvartandi hafi verið óánægð með góminn sem hún fékk hjá kæranda frá fyrsta degi. Þrátt fyrir að breytingar hafi orðið á tannrima undanfarin 2-3 ár vegna frekari aðgerða hafi þéttleiki innra byrðis smellugómsins við slímhúð gómburðarsvæðis verið ójafn milli framtanna- og jaxlasvæðis, sem hafi leitt til mismikils bils milli gómaplasts og slímhúðar þegar gómurinn sat á festingunum. Stöðugleiki hafi því verið ófullnægjandi, þrátt fyrir gott hald gómsins á festingunum. Þá bendi vægir talörðugleikar til of mikillar bithæðar auk þess sem veltilínan hafi verið óhagstæð. Var það niðurstaða embættisins að undirbúningur tanngervissmíðarinnar hafi ekki verið fullnægjandi. Það hafi leitt til innbyggðrar skekkju strax í upphafi meðferðar sem krafðist í kjölfarið ítrekaðra og flókinna lagfæringa sem voru aðeins á færi sérhæfðra tannlækna að leysa.

Kærandi mótmælir því að kvartandi hafi verið óánægð frá upphafi og bendir á að tanngervið hafi passað við afhendingu þess 25. janúar 2021 og að eðlilegar lagfæringar hafi verið gerðar í kjölfarið. Síðar hafi tannplanti losnað, sem kunni að skýra athugasemdir kvartanda um óstöðugleika. Þá telur kærandi að ályktanir embættisins um stöðugleika, bithæð og veltilínu séu ekki byggðar á fullnægjandi gögnum Í því sambandi bendir kærandi á að óháður sérfræðingur hafi ekki tekið röntgenmynd af kvartanda og að skoðun hans hafi ekki farið fram fyrr en um þremur árum eftir afhendingu tanngervisins og eftir frekari aðgerðir sem höfðu breytt aðstæðum í efri gómi kvartanda.

Að því er varðar þann hluta meðferðarinnar sem kærandi annaðist liggja fyrir ítarlegar málsatvikalýsingar kæranda og kvartanda, sjúkraskrá kvartanda hjá kæranda og umsögn óháðs sérfræðings í tann- og munngervalækningum. Þá aflaði embætti landlæknis umsagnar tannsmiðs, sem kom að meðferð kvartanda með kæranda og smíðaði tanngervið, auk umsagnar X, sem vísaði kvartanda til kæranda eftir ísetningu tannplantanna. Álit landlæknis er jafnframt undirritað af landlækni, lækni og tannlækni sem komu að meðferð málsins.

Embætti landlæknis tók athugasemdir kæranda til skoðunar og bar jafnframt athugasemdir hennar við umsögn óháðs sérfræðings undir sérfræðinginn og óskaði eftir upplýsingum um hvort athugasemdir kæranda gæfu tilefni til breytinga á umsögn hans. Í kjölfarið gerði sérfræðingurinn tilteknar breytingar á umsögn sinni en taldi að öðru leyti ekki þörf á að bregðast við athugasemdunum og stóð við niðurstöðu umsagnarinnar. Embætti landlæknis taldi athugasemdir kæranda ekki gefa tilefni til breytinga á niðurstöðu sinni.

Að því er rannsókn málsins varðar er það mat ráðuneytisins að rannsókn embættis landlæknis á þeim hluta málsins sem lýtur að smíði tanngervisins hafi verið fullnægjandi og í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga. Fyrir lágu sjúkraskrár kvartanda hjá kæranda, málsatvikalýsingar aðila og umsagnir þeirra sérfræðinga og heilbrigðisstarfsmanna sem að framan greinir. Þá voru athugasemdir kæranda teknar til skoðunar við meðferð málsins og bornar undir óháða sérfræðinginn að því marki sem þær lutu að umsögn hans. Að mati ráðuneytisins var þessi hluti málsins því nægjanlega upplýstur áður en álit embættisins lá fyrir. Ekki verður því talið að rannsókn embættis landlæknis hafi verið haldin annmarka að því er varðar þann hluta málsins sem laut að smíði tanngervisins.

Þrátt fyrir framangreint er í áliti landlæknis ekki gerð nægilega skýr grein fyrir því á hvaða gögnum einstakar niðurstöður embættisins byggja. Rökstuðningur álitsins er að þessu leyti ekki að fullu í samræmi við 5. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, sem mælir fyrir um að landlæknir skuli færa rök fyrir niðurstöðu sinni.

III. og IV. Aðkoma tanntækna að sérhæfðri meðferð og færsla í sjúkraskrá

Embætti landlæknis kemst að þeirri niðurstöðu í áliti sínu að kærandi hafi falið tanntæknum of veigamikil verkefni í sérhæfðri tannlæknismeðferð kvartanda á síðari stigum hennar, þrátt fyrir að slík verk falli utan menntunar og faglegrar þekkingar þeirra. Þá gerði embættið einnig alvarlegar athugasemdir við skráningu kæranda í sjúkraskrá kvartanda, m.a. vegna skorts á upplýsingum um verkþætti, aðkomu starfsmanna og framvindu meðferðar.

Kærandi mótmælir þessari niðurstöðu og byggir á því að rannsókn embættisins hafi verið ófullnægjandi, einkum hvað varðar verkaskiptingu á tannlæknastofu hennar. Bendir hún á að í álitinu sé annars vegar vísað til þess að ekki sé ljóst af sjúkraskrárfærslum hver hafi sinnt tilteknum verkþáttum, en hins vegar fullyrt að tanntæknar hafi sinnt meðferðarþáttum í umtalsverðum mæli. Slík mótsögn bendi til þess að rannsókn embættisins hafi ekki verið fullnægjandi.

Við mat á því hvort rannsókn embættis landlæknis hafi verið fullnægjandi telur ráðuneytið nauðsynlegt að líta til þess að verulegur skortur er á sjúkraskrárfærslum í málinu, m.a. um skráningu verkþátta, aðkomu einstakra starfsmanna og framvindu meðferðar. Af fyrirliggjandi gögnum málsins, þ.m.t. sjúkraskrá kvartanda og öðrum fylgigögnum, verður þó ráðið að aðkoma tanntækna að meðferðinni hafi verið nokkur og þá einkum á síðari stigum hennar, þegar kvartandi hafði þegar látið óánægju sína með meðferðina í ljós. Þótt ekki liggi fyrir sundurliðun allra verkþátta verður ekki talið að það leiði til þess að embætti landlæknis geti ekki lagt mat á umfang þjónustu þeirra gagnvart kvartanda.

Það er mat ráðuneytisins að það feli ekki í sér brot á rannsóknarreglu stjórnsýslulaga að embættið hafi annars vegar bent á að sjúkraskrárfærslur væri ófullnægjandi en hins vegar, á grundvelli heildarmats á gögnum málsins, komist að þeirri niðurstöðu að tanntæknar hafi sinnt tilteknum meðferðarþáttum umfram það sem menntun þeirra og þekking gefi tilefni til. Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða ráðuneytisins að rannsókn embættis landlæknis hafi, af því er varðar aðkomu tanntækna og sjúkraskrárfærslum, verið í samræmi við ákvæði 10. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

V. Samskipti og samvinna við sjúkling og viðhald trausts

Að lokum kemst embætti landlæknis að þeirri niðurstöðu í áliti sínu að kærandi hafi ekki náð að mynda trúnaðarsamband milli hennar og kvartanda, sem embættið telur að allir tannlæknar eigi að keppast við að rækta. Embættið tekur fram að án slíks sambands sé tæpast að vænta ánægju með veitta þjónustu þegar útkoma þjónustunnar er ekki í fullu samræmi við væntingar þjónustuþega.

Kærandi byggir á að engin gögn liggi fyrir í málinu sem styðji niðurstöðu embættisins að þessu leyti. Þá tekur kærandi fram að engin gögn liggi fyrir um að samband kæranda og kvartanda hafi ekki verið gott fram að því að tannplanti losnaði, en fyrir liggi að vinna kæranda hafi ekki orsakað það, heldur megi rekja það til þess að bein kvartanda héldu ekki tannplantanum. Þvert á móti telur kærandi að það liggi fyrir að kvartandi hafi verið ánægð með útlit gómsins og hann hafi passað vel í upphafi og að hún hafi skilað af sér vel unnu verki í janúar 2021. Vísar kærandi í sjúkraskrá kvartanda því til fulltingis. Hins vegar hafi kærandi ekki fengið tækifæri til að festa góminn í að nýju á endurísetta tannplanta þar sem kvartandi hafði þá ákveðið að leita til annars tannlæknis til að ljúka verkinu.

Samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 ber heilbrigðisstarfsmanni að leitast við að koma á og viðhalda traustu sambandi við sjúkling. Sú skylda felur m.a. í sér að heilbrigðisstarfsmanni ber að tryggja viðeigandi samskipti og upplýsingagjöf, sérstaklega þegar upp koma vandamál eða ófyrirséð atvik í meðferð.

Gögn málsins bera ekki með sér að samskiptabrestur eða vantraust hafi verið fyrir hendi við upphaf meðferðarinnar. Hins vegar má ráða að óánægja kvartanda hafi gert vart við sig vegna framgangs og afraksturs meðferðarinnar sem hún naut hjá kæranda og kemur sú óánægja að einhverju leyti fram í sjúkraskrá. Að auki tók kvartandi ákvörðun um að leita til annars tannlæknis til að ljúka meðferðinni eftir að tannplöntum hafið verið komið fyrir að nýju eftir beinaukandi aðgerð. Slíkar aðstæður benda að mati ráðuneytisins til þess að trúnaðarsamband milli kvartanda og kæranda hafi ekki verið nægjanlega traust á síðari stigum meðferðarinnar, hver sú sem ástæða þess kann að hafa verið.

Af gögnum málsins verður ráðið að málsmeðferð embættis landlæknis hafi verið í samræmi við rannsóknarreglu stjórnsýslulaga hvað þennan þátt álitsins varðar. Niðurstaðan byggðist á heildarmati á gögnum málsins, m.a. sjúkraskrárupplýsingum kvartanda hjá kæranda, kvörtuninni sjálfri, athugasemdum og greinargerðum og öðrum gögnum kvörtunarmálsins.

VI. Samantekt

Með hliðsjón af öllu því sem hér að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins að málsmeðferð embættis landlæknis hafi, hvað varðar stóran hluta álitsins, ekki verið í samræmi við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og rökstuðningsreglu 5. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Þessir annmarkar á álitinu eru þess eðlis að ekki verður komist hjá því að fella úr gildi málsmeðferð þess, sbr. 6. mgr. 12. gr. laga nr. 41/2007.

Ú r s k u r ð a r o r ð

 

Málsmeðferð embættis landlæknis í áliti vegna heilbrigðisþjónustu kæranda, dags. 17. júlí 2025, er felld úr gildi. Lagt er fyrir embætti landlæknis að taka álitið til nýrrar málsmeðferðar með hliðsjón af niðurstöðu ráðuneytisins.

 
 
 
 
 

Var efnið hjálplegt?