11. febrúar 2025 /

Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Síðbúinn skil ársreiknings

Hinn 11. febrúar 2025, var í menningar- og viðskiptaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytinu barst erindi [A], dags. 13. október 2021, f.h. [B] ehf., kt. […] (hér eftir félagið), þar sem borin er fram kæra vegna ákvörðunar ársreikningaskrár f.h. ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá), dags. 4. október 2021, um að leggja stjórnvaldssekt á félagið þar sem ársreikningi fyrir reikningsárið 2020 hafi ekki verið skilað.

 

Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

Forsendur og niðurstaða

Félagið var afskráð 8. desember 2021. Félagið hefur því ekki lögvarða hagsmuni af niðurstöðu ráðuneytisins. Með vísan til þess sem að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins í málinu að vísa frá kæru á ákvörðun ársreikningaskrá.

 

Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær má rekja til mikilla anna ráðuneytinu. Þá er vakin athygli á að úrskurðurinn verður einungis sendur með rafrænum hætti, nema annars sé óskað.

 

Úrskurðarorð

Kæru á ákvörðun ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, dags. 4. október 2021, um að leggja á sekt vegna síðbúinna skila ársreiknings einkahlutafélagsins [B]. vegna reikningársins 2020 er vísað frá_._

Var efnið hjálplegt?