Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Síðbúinn skil ársreiknings

Hinn 18. mars 2025, var í menningar- og viðskiptaráðuneytinu

kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

 

Endurupptaka

Með úrskurði ráðuneytisins, dags. 9. janúar 2025, var staðfest ákvörðun ársreikningaskrár ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá) um að leggja stjórnvaldssekt á einkahlutafélagið [A]., kt. […] vegna síðbúinna skila ársreiknings vegna reikningársins 2021.

 

Þann 9. janúar 2025 barst ráðuneytinu beiðni [B] (hér eftir kærandi) f.h. [A] ehf. (hér eftir félagið) um endurupptöku málsins.

 

Beiðni kæranda um endurupptöku byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

Kröfur

Af kæru má ráða að kærandi krefst þess að mál félagsins verði endurupptekið.

 

Málsatvik og sjónarmið

Hinn 11.janúar 2024 barst ráðuneytinu erindi kæranda þar sem óskað var eftir niðurfellingu á sekt sem lögð var á félagið vegna tafar á skilum á ársreikningi.

 

Hinn 9. janúar 2025 staðfesti ráðuneytið ákvörðun ársreikningaskrár um að leggja stjórnvaldssekt á félagið. Hinn sama dag barst ráðuneytinu beiðni kæranda f.h. félagsins um endurupptöku málsins. Vísað var til þess að ársreikningum hefði verið skilað innan tilskilins frests en vegna tæknilegra örðuleika í innsendingarkerfi hafi ein síða ekki fylgt ársreikningi. Þá hafi ráðuneytið brotið gegn andmælarétti kæranda þar sem að hann hafi ekki verið upplýstur að mál hans væri í meðferð og hann hefði því ekki haft kost á að leggja fram sjónarmið sitt og rökstuðning. Ráðuneytið sendi samdægurs beiðni um umsögn ásamt sjónarmiðum kæranda til ársreikningaskrá.

 

Hinn 19. febrúar bárust umbeðnar upplýsingar frá ársreikningaskrá. Þar kom fram að rafræn spor félagsins hafi leitt í ljós að ársreikningi fyrir reikningsárið 2021 hafi verið skilað 21. september 2023. Þá hefðu engar frekar heimsóknir verið í skilakerfi ársreikninga vegna reikningsárs 2021. Jafnframt væru engar villur sjáanlegar. Þá var áréttað að annað hvort væru skil ársreiknings að fullu eða ekki. Ekki væri möguleiki á að ein síða ársreiknings gæti ekki komist til skila. Hinn sama dag var kæranda veittur réttur til andmæla svörum ársreikningaskrá með frest til 5. mars 2025. Enginn svör bárust.

 

Forsendur og niðurstaða

I.

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, sbr. 1. tölul. ákvæðisins, eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 2. tölul. ákvæðisins.

Af sjónarmiðum kæranda má ráða að beiðni hans byggist á því að úrskurður ráðuneytisins frá 9. janúar 20205 hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Úrskurður ráðuneytisins byggist á því að kærandi hafi ekki skilað inn ársreikningi á tilsettum tíma. Kærandi kvað það vera vegna tæknilegra örðuleika. Með tölvubréfi, dags. 19. febrúar 2025, ársreikningaskrár var ráðuneytið upplýst um tímasetningu skila ársreiknings fyrir reikningsárið 2021 og jafnframt upplýst um að engir tæknilegir örðuleikar hefðu átt sér stað í ferli kæranda. Þrátt fyrir beiðni með tölvubréfi, dags. 19. febrúar 2025, brást kærandi ekki við þeim upplýsingum. Það er því mat ráðuneytisins að ekki hefur verið sýnt fram á að úrskurður ráðuneytisins hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik í skilningi 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Verður beiðni kæranda um endurupptöku því hafnað.

Það er mat ráðuneytisins að ekki hafi verið brotið gegn andmælarétti kæranda við meðferð málsins. Hinn 10. júlí 2024 var kæranda sent tölvubréf um að erindi hans hefði verið móttekið og upplýstur um að erindi væru afgreidd í þeirri röð er þau bærust. Jafnframt var honum tilkynnt að eftir frumskoðun á erindinu virtist ekki vera flötur til niðurfellingar. Hinn 9. janúar 2025 var úrskurðað í máli kæranda. Kærandi hafði því a.m.k. frá 10. júlí 2024 til 9. janúar 2025 fullt færi til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri enda var hann meðvitaður um að mál hans væri til meðferðar.

 

Úrskurðarorð

Kröfu[A] um endurupptöku málsins er hafnað.

Var efnið hjálplegt?