19. des. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
1330/2025. Úrskurður frá 19. desember 2025
Málið varðaði beiðni um aðgang að kirkjubókum í vörslum presta þjóðkirkjunnar. Ákvörðun þjóðkirkjunnar að hafna beiðninni var byggð á því að henni væri það óheimilt nema ef óskað væri upplýsinga um sig sjálfan. Úrskurðarnefndin taldi að þjóðkirkjan, eða færsla hennar á kirkjubókum, félli ekki undir gildissvið upplýsingalaga. Því væri ákvörðun þjóðkirkjunnar ekki kæranleg til úrskurðarnefndarinnar á grundvelli laganna. Þá lyti beiðni kæranda ekki að skjölum sem féllu undir lög um opinber skjalasöfn. Kærunni var því vísað frá.