05. nóv. 2020Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðismál, Málefni eldra fólks, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið
Samið um rekstur sérhæfðrar COVID-19 hjúkrunardeildar
Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Hlíðarskjól ehf. um opnun 10 rýma hjúkrunardeildar fyrir aldraða hjúkrunarsjúklinga sem smitast hafa af COVID-19. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn. Deildin er ætluð íbúum hjúkrunarheimila sem veikst hafa af COVID-19 og þurfa tímabundið á sérhæfðri þjónustu að halda svo sem í framhaldi af sjúkrahúsmeðferð.