01. feb. 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins
Kynnti sjálfbæran fjármögnunarramma á vel sóttum fjarfundi
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti á vel sóttum fjarfundi IcelandSIF í síðustu viku, sjálfbæran fjármögnunarramma ríkissjóðs, sem birtur var í september sl. Fjármögnunarramminn hlaut „dökkgræna“ einkunn (e. Dark Green) hjá Cicero, Shades of Green, alþjóðlega viðurkenndum og sjálfstæðum vottunaraðila.