22. jún. 2017Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Ferðaþjónusta, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið
Lykillinn að sjálfbærri þróun ferðamannastaða: Málstofa í Hörpu
Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, kynnir 27. júní nýja skýrslu um íslensk efnahagsmál. Slík skýrsla er gefin út á tveggja ára fresti. Í skýrslunni er að þessu sinni sérstök umfjöllun um stöðu ferðaþjónustunnar og í ljósi þess boðar fjármála- og efnahagsráðuneytið til málstofu í samstarfi við Seðlabanka Íslands og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.