01. des. 2020Heilbrigðisráðuneytið, Covid-19, Líf og heilsa
COVID 19: Frumvarp um bótarétt vegna bólusetningar
Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á lögum um sjúklingatryggingu sem hefur að markmiði að styrkja réttarstöðu fólks vegna bólusetningar við COVID-19. Með frumvarpinu er kveðið á um bótarétt komi til þess að einstaklingur verði fyrir tjóni sem hlýst af eiginleikum bóluefnisins eða rangri meðhöndlun þess, þar með talið við flutning þess, geymslu, dreifingu eða bólusetningu af hálfu heilbrigðisstarfsmanns þrátt fyrir að öllum reglum og góðum framleiðsluháttum hafi verið fylgt við þróun og framleiðslu viðkomandi bóluefnis. Með fyrirhugaðri lagabreytingu verður réttarstaða fólks hér á landi sambærileg því sem er í Danmörku og Noregi.