18. feb. 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Dagur umhverfisins, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Menntamál, Umhverfi og náttúruvernd
Kallað eftir nemendaverkefnum fyrir Varðliða umhverfisins
Varðliðar umhverfisins, verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10 bekk er nú hafin í 14. sinn. Samkeppninni er ætlað að hvetja börn og unglinga til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn þeirra á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Skilafrestur verkefna er 3. apríl 2020.