27. okt. 2021Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mál nr. 359/2021 - Úrskurður
Örorkumat. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur. Skilyrði 75% örorku samkvæmt örorkustaðli ekki uppfyllt. Felld úr gildi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um örorkustyrk og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til rannsóknar á aukakostnaði kæranda vegna veikinda hans. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála var sá hluti málsins ekki nægjanlega upplýstur, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.