09. okt. 2020Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið
Úrskurður nr. 23/2020
Með kæru, dags. 8. júní 2020, kærði A, hér eftir nefnd kærandi, synjun embættis landlæknis frá 7. maí 2020 á umsókn um starfsleyfi sem sjúkraliði. Í kæru er þess krafist að ráðuneytið felli úr gildi ákvörðun embættis landlæknis og leggi fyrir embættið að veita kæranda starfsleyfi. Ákvörðun embættis landlæknis frá 7. maí 2020, um að synja kæranda um starfsleyfi sem sjúkraliði, er felld úr gildi og embætti landlæknis falið að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.