15. feb. 2018Samgöngur og fjarskipti, Sveitarstjórnir og byggðamál, Fjarskipti, Samgönguáætlun, Innviðaráðuneytið
Drög að lagafrumvarpi til að samræma áætlanir á sviði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis til umsagnar
Til umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum til samræmingar á áætlunum ráðuneytisins: Samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun, sem og ný áætlun um stefnu ríkisins á málefnum sveitarfélaga. Unnt er að skoða drögin á samráðsgáttinni um opið samráð stjórnvalda við almenning og senda umsagnir til 1. mars nk.