05. júl. 2018Nýsköpun, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Samstarfsverkefni með MIT um bætt umhverfi nýsköpunardrifinnar frumkvöðlastarfsemi
Frá árinu 2016 hefur verið í gangi samstarfsverkefni með Massachusetts Institute of Technology (MIT) sem miðar að því að bæta umhverfi nýsköpunardrifinnar frumkvöðlastarfsemi á Íslandi. Formleg útskrift samvinnuverkefnisins við MIT fór fram í síðustu viku í MIT háskólanum í Cambridge. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, hélt ávarp við útskriftina og átti í kjölfarið góðar samræður við yfirmenn nýsköpunarverkefna hjá MIT.