29. sep. 2026Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir
1389/2026. Úrskurður frá 29. september 2026
Deilt var um ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands að afmá tilteknar upplýsingar, meðal annars um einingarverð, hámarksgreiðslur og þjónustumagn, úr samningi stofnunarinnar við SÁÁ um meðferð við fíknisjúkdómi áður en hann var afhentur kæranda. Ákvörðunin byggðist á því að upplýsingarnar vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- og viðskiptahagsmuni SÁÁ, sbr. 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins, sbr. 3. tölul. 10. gr. laganna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að upplýsingar um fyrirkomulag meðferða væru almenns eðlis, að upplýsingar um hámarksgreiðslu hefðu þegar verið birtar opinberlega og að ekki hefði verið sýnt fram á að aðrar upplýsingar væru til þess fallnar að valda SÁÁ tjóni, auk þess sem 10. gr. laganna ætti ekki við.…