Fjölmiðlar

Markmið laga um fjölmiðlun er m.a. að stuðla að tjáningarfrelsi, rétti til upplýsinga, fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum sem og að efla vernd neytenda á þeim vettvangi. Fjölmiðlanefnd hefur eftirlit með framkvæmd fjölmiðlalaga. Ríkisútvarpið sér um fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Markmið þess samkvæmt lögum er að stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi eins og nánar er kveðið á um í samningi við ráðherra.

Styrkir til fjölmiðla

Styrkir til einkarekinna fjölmiðla

Stuðningur stjórnvalda við einkarekna fjölmiðla var festur í sessi til fimm ára árið 2026. Endurskoðað stuðningskerfi tók gildi í júní 2026, með breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011, um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Stuðningur er tvíþættur: Annars vegar er veittur almennur rekstrarstuðningur til einkarekinna fjölmiðla og hins vegar viðbótarstuðningur við fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu, til fjölmiðla sem uppfylla sértæk skilyrði. Gildistími stuðningskerfis er til ársloka 2030. Úthlutunarnefnd um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla auglýsir eftir umsóknum og annast mat á þeim. Fjölmiðlanefnd annast umsýslu fyrir úthlutunarnefnd og veitir nefndinni sérfræðiaðstoð.

Styrkir til staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgaravæðisins

Reglur hafa verið birtar árlega í Stjórnartíðindum og auglýst eftir umsóknum á vef Stjórnarráðs Íslands. Úthlutun ársins 2026 fór fram á grundvelli reglna nr. 833/2026 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla:

Reglur nr. 1189/2025 um styrkveitingar til staðbundinna fjölmiðla

Talsetningar- og textunarsjóður fjölmiðlaveitna

Sjóðurinn er starfræktur tímabundið til þriggja ára (2024-2026). Reglur hafa verið birtar árlega í Stjórnartíðindum og auglýst eftir umsóknum á vef Stjórnarráðs Íslands, sbr. reglur nr. 980/2026 um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna. Tilkynnt verður um úthlutun ársins 2026 í í nóvember.

Reglur nr. 980/2026 um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna.

Nýsköpunar- og þróunarsjóður fjölmiðla

Árið 2026 var settur á laggirnar nýsköpunar- og þróunarsjóður fjölmiðla. Reglur nr. 986/2026 um úthlutun styrkja úr sjóðnum voru birtar 14. september 2026. Í reglunum kemur fram að sjóðnum sé ætlað að veita styrki til skilgreindra verkefna sem stuðla að nýsköpun, tækniþróun og þróun nýrra viðskiptaaðgerða á einkareknum fjölmiðlum. Úthlutanir úr sjóðnum verða annars vegar í formi verkefnastyrkja til stofnunar og þróunar nýrra fréttamiðla og hins vegar til nýsköpunarverkefna innan starfandi fréttamiðla. Til úthlutunar árið 2026 verða 40 m.kr. að frádregnum umsýslukostnaði. Rannís annast umsjón með sjóðnum fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis. Úthlutunarnefnd nýsköpunar- og þróunarsjóðs leggur mat á umsóknir. Opið er fyrir umsóknir á vef Rannís og er umsóknarfrestur til 16. nóvember 2026.

Aðgerðaráætlun stjórnvalda fyrir íslenska fjölmiðla

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, kynnti í desember 2025 aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir íslenska fjölmiðla. Aðgerðaáætlunin er afrakstur viðamikils samráð við fjölmiðla landsins, auglýsendur og framleiðendur. Hún telur um tuttugu aðgerðir og hvílir á þremur þáttum:

•           Fjölmiðar eru grunnstoð í samfélaginu

•           Alþjóðleg samkeppni grefur undan íslenskum fjölmiðlum

•           Nauðsynlegt er að horfa á íslenskt fjölmiðlaumhverfi sem eina heild

Ráðuneytið stóð fyrir málþingi í febrúar 2024 undir yfirskriftinni  „Fjölmiðlar á tímum stafrænnar byltingar“ 
Upptöku frá málþinginu má sjá hér að neðan.

Eftirlit með fjölmiðlum

Samkvæmt fjölmiðlalögum og tilskipun Evrópusambandsins um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu er haft eftirlit með afmörkuðum þáttum í starfsemi fjölmiðla, einkum hvað varðar auglýsingar og vernd barna og ungmenna gegn skaðlegu efni. Fjölmiðlanefnd sér um þetta eftirlit og hún er sjálfstæð stjórnsýslunefnd og hefur ráðherra því ekki almennar stjórnunar- eða eftirlitsheimildir yfir henni. Af því leiðir að ráðherra gefur nefndinni hvorki almenn né sérstök tilmæli um úrlausn mála.

Evrópusamstarf í fjölmiðlamálum

Samkvæmt ákvæðum EES-samningsins eru ákvæði tilskipunar Evrópusambandsins um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu leidd í lög á Íslandi og eru uppistaðan í fjölmiðlalögum.  Samstarf við ríki innan EES á sviði fjölmiðlunar helgast einkum af ákvæðum tilskipunarinnar, reglum um ríkisstyrki og ýmsum öðrum tilskipunum og reglum um frjáls viðskipti, höfundaréttarmál og fleira. Þá tekur Ísland þátt í störfum stýrinefndar Evrópuráðsins um fjölmiðla og nýja miðla (CDMC) auk þess að ráðuneytið á í óformlegu samstarfi við hin Norðurlöndin á þessum sviðum.

Ríkisútvarpið

Ríkisútvarpið er sjálfstætt opinbert hlutafélag í eigu íslenska ríkisins og  stjórn þess fer með æðsta vald í málefnum þess á milli aðalfunda. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri Ríkisútvarpsins, að farið sé að lögum og að samþykktir þess og ákvæði samnings um fjölmiðlun í almannaþágu séu uppfyllt. Útvarpsstjóri er framkvæmdastjóri Ríkisútvarpsins og hefur daglegan rekstur þess með höndum auk þess að vera æðsti yfirmaður allrar dagskrárgerðar.
Var efnið hjálplegt?