Samstarfsnefnd um málefni þjóðlendna starfar samkvæmt 4. gr. laga nr. 58/1998, um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta. Nefndin er forsætisráðherra til aðstoðar við stjórn og ráðstöfun réttinda innan þjóðlendna. Jafnframt skal nefndin árlega gera tillögur til forsætisráðherra um ráðstöfun tekna af réttindum innan þjóðlendna, sbr. 4. mgr. 3. gr. s.l.
Nefndin er þannig skipuð:
- Regína Sigurðardóttir, sérfræðingur, formaður, skipuð án tilnefningar.
- Hafsteinn S. Hafsteinsson, lögfræðingur, tilnefndur af umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra.
- Hanna Dóra Hólm Másdóttir, sérfræðingur, tilnefnd af innviðaráðherra.
- Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
- María Reynisdóttir, sérfræðingur, tilnefnd af atvinnuvegaráðherra.
- Valdís Ösp Árnadóttir, sérfræðingur, tilnefnd af félags- og húsnæðismálaráðherra.
- Valtýr Valtýsson, fyrrverandi sveitarstjóri, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Hér að neðan má sjá yfirlit yfir fundi samstarfsnefndar um málefni þjóðlendna veturinn 2026:
- Þriðjudaginn 1. desember.
Fundartímar fyrir árið 2027 verða settir inn í janúar ´27.
Sjá einnig:
Var efnið hjálplegt?