Tilgangur samstarfsnefndar ríkis og sveitarfélaga (Jónsmessunefndar) er að auka traust og formfestu í samskiptum ríkis og sveitarfélaga, bæta stjórnsýslu hins opinbera og efla gagnkvæman skilning á viðfangsefnum og þörfum hvors aðila fyrir sig. Nefndin skal fara yfir einstök mál sem vísað er til hennar og jafnframt skal nefndin taka sérstaklega upp á fundum sínum umræðu um með hvaða hætt er unnt að bæta verkferla og samskipti þessara stjórnsýslustiga sbr. 6. mgr. 128. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Nefndin er þannig skipuð:
- Ingilín Kristmannsdóttir, ráðuneytisstjóri í innviðaráðuneytinu
- Hermann Sæmundsson, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- Almar Guðmundsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur
Með nefndinni starfa:
- Aðalsteinn Þorsteinsson, skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu
- Guðni Geir Einarsson, forstöðumaður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
- Jóhanna Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu
- Marta Guðrún Skúladóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- Þórdís Sveinsdóttir, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Núgildandi samstarfssáttmáli er frá 2. apríl 2008 og er hann ótímabundinn en með ákvæði um endurskoðun ef annar hvor aðili telur ástæðu til.
Var efnið hjálplegt?