Mál nr. 1/2025 - Úrskurður
Mál nr. 1/2025
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála
A
gegn
S
Réttur gagnvart sjúkrasjóði. Mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna. Erlent læknisvottorð.
Ekki fallist á brot.
Greiðslu úr sjúkrasjóði stéttarfélags var hafnað þar sem uppruni vottorðs sem fylgdi umsókn um sjúkradagpeninga var ekki úr íslensku heilbrigðiskerfi, sem kærandi taldi fela í sér mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna. Kærði taldi synjun sína reista á hlutlægum og málefnalegum rökum. Var það niðurstaða kærunefndar að kærði S hefði ekki gerst brotlegur við lög nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði.
- Á fundi kærunefndar jafnréttismála hinn 24. september 2026 er tekið fyrir mál nr. 1/2025 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
- Með kæru, dags. 8. janúar 2025, kærði A brot á d-lið 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, gagnvart sér er kærði, S, synjaði kæranda um greiðslu úr sjúkrasjóði félagsins á þeim grundvelli að kærandi
hefði lagt fram erlent læknisvottorð með umsókn sinni um greiðslu úr sjúkrasjóðnum en ekki íslenskt og á íslensku. - Kæran ásamt fylgigögnum var kynnt kærða með bréfi kærunefndar jafnréttismála, dags. 4. febrúar 2025. Greinargerð kærða er dags. 3. apríl s.á. Var hún send kæranda til athugasemda með bréfi, dags. 7. apríl, og eru athugasemdir kæranda dags. 9. apríl. Voru þær kynntar kærða með tölvubréfi, dags. 14. júlí 2025, en hinn 16. júlí tilkynnti kærði að hann gerði ekki frekari athugasemdir.
MÁLAVEXTIR
- Málavextir eru þeir að kærandi, sem er […] að þjóðerni, en hafði starfað sem launþegi hér á landi, sótti um greiðslu sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóði kærða eftir að veikindarétti hans hjá íslenskum vinnuveitanda var lokið. Umsókninni fylgdu vottorð frá […] sem kærandi taldi sanna veikindi sín og rétt til greiðslu úr sjúkrasjóðnum, en kærandi taldi sér ekki fært vegna aðstæðna sinna að koma til Íslands. Fylgdu vottorðunum þýðingar hvort tveggja yfir á ensku og íslensku.
- Greiðslu sjúkradagpeninga var hafnað á þeim grundvelli að læknisvottorðið sem fylgdi umsókninni væri ekki upprunnið úr íslensku sjúkraskrárkerfi, og á íslensku, en það leiddi til þess að starfsfólk kærða gæti ekki sannreynt uppruna þess með óyggjandi hætti. Vísaði kærði m.a. til framkvæmdar hjá öðrum sjúkrasjóðum hér á landi, en reynslan hefði sýnt að í allnokkrum tilvikum hefðu erlend vottorð reynst tilbúin eða ekki stafað frá aðilum sem bærir væru til að gefa út slík vottorð samkvæmt starfsreglum sjóðsins.
- Af hálfu kæranda var talið að afstaða kærða fæli í sér mismunun gagnvart sér á grundvelli þjóðernisuppruna, sbr. lög nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, þar sem aðilar af erlendu þjóðerni fari í fleiri tilvikum til síns heima og eigi því óhægara um vik að afla læknisvottorða hér á landi til sönnunar veikindum sínum. Höfnun kærða fæli því í sér beina eða óbeina mismunun. Af hálfu kærða var synjun á viðurkenningu á vottorðum, sem ekki eiga sér íslenskan uppruna, talin byggjast á hlutlægum og málefnalegum ástæðum, og ekki fela í sér mismunun á grundvelli laga nr. 86/2018. Kærða væri ófært að sannreyna að vottorð sem ættu sér erlendan uppruna staðfestu rétt viðkomandi til greiðslu úr sjúkrasjóðnum.
SJÓNARMIÐ KÆRANDA
- Af hálfu kæranda er til þess vísað að hann hafi vegna veikinda sótt um sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóði kærða, S, en umsókninni hafi verið hafnað af kærða hinn […] 2024 á þeim grundvelli að læknisvottorð sem umsókn byggði á hafi verið erlent en ekki íslenskt.
- Kærandi hafi búið og starfað hjá fyrirtækjum á starfssvæði kærða fram á árið 2024. Starf hans hafi verið líkamlega erfitt sem leitt hafi til slæms líkamlegs ástands og hafi orðið til þess að hann hafi þurft að fara erlendis vegna óvinnufærni sinnar. Hinn […] 2024 hafi hann farið í sumarleyfi sem standa hafi átt til […]. Hafi kærandi þá farið til heimalands síns, […], en þar hafi hann hlotið alvarleg bakmeiðsl við einfaldar heimilisathafnir. Hafi hann leitað til læknis í […] daginn eftir og hafi læknirinn gefið út veikindavottorð til […] s.á., sem sent hafi verið til vinnuveitanda. Hafi veikindavottorðið ásamt enskri þýðingu verið viðurkennt af vinnuveitandanum sem greitt hafi áunna sex veikindadaga.
- Í kjölfar veikindaréttardaganna, eða hinn 28. ágúst, hafi kærandi sótt um sjúkradagpeninga hjá kærða. Hafi hann sent með öll læknisvottorð […] læknisins þýdd á ensku. Hafi umsókn hans verið tekin fyrir hjá kærða 25. september en verið hafnað á þeim grundvelli að læknisvottorðið væri erlent en verklagsreglur sjúkrasjóðsins kveði á um að við umsókn um sjúkradagpeninga verði að liggja fyrir fullgilt læknisvottorð á íslensku. Kærandi hafi hins vegar vegna veikinda sinna ekki getað ferðast til Íslands til að hitta þarlendan lækni, auk þess sem kærandi hafi verið orðinn fjárvana vegna lækniskostnaðar og framfærslu í […]. Kærandi hafi ekki haft tryggingar í […] þar sem hann hafi enn verið starfandi hjá fyrirtækinu á Íslandi.
- Kærandi hafi í framhaldi reynt að útskýra aðstæður sínar fyrir kærða og sent sjö vottorð fyrir tímabilið […] til […] 2024, bæði með enskum og íslenskum þýðingum. Kærandi hafi enn fengið neikvætt svar frá kærða og umsókninni hafnað á þeim grundvelli að framlögð vottorð væru erlend að uppruna. Kærandi hafi í kjölfar þessa viljað snúa aftur til vinnu á Íslandi en hann hafi síðan fengið að vita að honum hefði verið sagt upp störfum vegna fjarveru sinnar á veikindatímabilinu.
- Kærandi byggir kæru sína á því að sér hafi verið mismunað á grundvelli þjóðernisuppruna með því að erlendu vottorði frá meðferðarlækni hans í því landi sem hann hafi dvalið í hafi verið hafnað. Vísar kærandi til d-liðar 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði. Mismununin hafi falist í því að kærði hafi ekki viðurkennt erlend læknisvottorð þrátt fyrir ríka skyldu til þess, sbr. t.d. EES-samning sem Ísland sé aðili að. Fólk með annan þjóðernisuppruna en íslenskan sé útsettara fyrir mismunun enda sá hópur sem dvelur og fer oftar á annan dvalarstað vegna fjölskyldutengsla og uppruna. Sé þannig um að ræða beina mismunun en verði ekki fallist á það, sé um að ræða óbeina mismunun með því að setja reglur sem komi verr niður á ákveðnum hópum vegna þjóðernisuppruna.
- Kærandi tekur og fram í viðbótarathugasemdum sínum til nefndarinnar að samkvæmt hans bestu vitund sé ekki hægt og hafi aldrei verið hægt að sækja um íslensk læknisvottorð frá íslenskum lækni í gegnum Heilsuveru eða með öðrum rafrænum leiðum meðan á læknismeðferð stendur erlendis.
SJÓNARMIÐ KÆRÐA
- Af hálfu kærða er til þess vísað að kveðið sé á um skyldu atvinnurekanda til greiðslu í sjúkrasjóð stéttarfélags í 7. gr. laga nr. 19/1979, um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla. Þessi greiðsluskylda sé ítrekuð í 6. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Sá sjúkrasjóður sem greitt sé í ráðist af því á hvaða félagssvæði viðkomandi starfsmaður starfi og hvaða stéttarfélag hafi samningsrétt um starf viðkomandi starfsmanns. Um sjúkrasjóð kærða gildi lög stéttarfélagsins, reglugerð sjúkrasjóðs og verklagsreglur. Um starfsemi kærða gildi og starfs- og siðareglur félagsins. Aðildarsamtök ASÍ séu bundin af tilteknum lágmarksreglum um lengd bótatímabila, fjárhæð bóta og önnur grundvallarréttindi í sjúkrasjóðum aðildarfélaga samkvæmt 49. gr. laga ASÍ, en forræði sjóðanna sé hins vegar alfarið í höndum aðildarfélaganna sjálfra sem setji reglur sem sjúkrasjóðir starfi eftir.
- Réttur til dagpeninga eða styrkja úr sjóðnum sé bundinn við að viðkomandi hafi unnið á félagssvæði stéttarfélagsins og skilað hafi verið til félagsins félagsgjöldum af vinnu á félagssvæðinu í sex mánuði. Tilgangur sjúkrasjóðs sé fyrst og fremst að greiða félagsfólki bætur í veikinda-, slysa- og dánartilfellum, eftir að launagreiðslum atvinnurekanda lýkur að uppfylltum skilyrðum. Þennan rétt nýti sér mikill fjöldi félagsmanna af mörgum þjóðernum, bæði innan og utan EES-svæðisins. Þörf á aðstoð úr sjúkrasjóðnum og umsóknum hafi fjölgað mikið síðustu ár og sé svo komið hjá allnokkrum stéttarfélögum á landsvísu að iðgjöld til sjóðanna standi ekki undir greiðslu bóta og styrkja. Væntanlega muni þurfa að taka reglur um úthlutanir til endurskoðunar af þessum sökum. Vegna þessa sé enn mikilvægara en áður að stjórnir félaganna tryggi að greiðslur úr sjóðum byggist á raunverulegum veikindum félagsfólks sem þurfi á aðstoð að halda.
- Í 8. gr. laga nr. 19/1979 segi að vinnuveitandi geti ávallt krafist þess að starfsmaður sanni veikindi sín með læknisvottorði og á sama hátt geri allir sjúkrasjóðir þá kröfu að veikindi séu sönnuð. Þegar sótt sé um dagpeninga úr sjúkrasjóði sé ófrávíkjanlegt að framvísa þurfi læknisvottorði, sem staðfesti veikindin. Slík vottorð þurfi að uppfylla þær kröfur sem gerðar séu í lögum og kjarasamningum, en þær komi helst fyrir í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu og í lögum nr. 34/2012, um heilbrigðisstarfsmenn. Í 19. gr. síðastnefndu laganna segi að heilbrigðisstarfsmönnum beri að gæta varkárni, nákvæmni og óhlutdrægni við útgáfu vottorða, álitsgerða, faglegra yfirlýsinga og skýrslna og votta það eitt er þeir vita sönnur á og er nauðsynlegt í hverju tilviki. Þetta sé nánar útfært í reglugerð nr. 82/2025, um vottorð, álitsgerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur heilbrigðisstarfsmanna en þar sé skýrt kveðið á um hvernig útgáfu vottorða skuli háttað en hérlendis sé það læknir sem votti óvinnufærni viðkomandi starfsmanns samkvæmt nánar tilgreindum reglum.
- Kærði tekur fram að sjúkrasjóðnum berist á hverju ári fjöldi læknisvottorða, sem flest komi úr íslenskum sjúkrakerfum og hægt sé að staðfesta uppruna þeirra leiki vafi á réttmæti greiðslna úr sjóðnum. Fram til ársins 2024 hafi sjóðurinn tekið við vottorðum erlendis frá sem fullnægjandi sönnun á veikindum samkvæmt reglum félagsins. Hafi slík vottorð verið tekin gild í góðri trú um uppruna þeirra og vottun veikinda. Engin kerfi séu þó til staðar hérlendis sem bjóða upp á að sannreyna uppruna erlendra heilbrigðisvottorða. Síðustu ár hafi orðið mikil fjölgun á slíkum vottorðum og hafi kærða lærst að mismunandi reglur og venjur gildi milli landa um ritun slíkra vottorða, hvaða upplýsingar komi þar fram og hverjir skrifi undir þau. Komi vottorðin frá ýmsum heilbrigðiskerfum og einkastofum og séu á margvíslegu formi.
- Reynsla kærða og annarra stéttarfélaga hafi sýnt að ítrekað berist vottorð sem grunur leiki á að séu ekki gefin út af þar til bærum heilbrigðisstarfsmönnum og að í of mörgum tilvikum hafi sá grunur fengist staðfestur. Hafi kærði lagt í mikla vinnu og kostnað við að ganga úr skugga um lögmæti vottorða. Framkvæmdin hafi leitt í ljós ómöguleika á að staðfesta uppruna erlendra vottorða með fullnægjandi hætti. Í mörgum tilvikum hafi vottorð reynst tilbúningur og um hafi verið að ræða vandaðar falsanir, enda auðvelt að útbúa slík gögn. Á árinu 2023 hafi vaknað sterkur grunur hjá starfsmenntasjóðum stéttarfélaganna innan ASÍ að framvísuð erlend vottorð, prófskírteini og reikningar til staðfestingar á rétti hafi verið fölsuð, en greitt hafði verið úr sjóðunum í góðri trú. Í framhaldi af þessu hafi stjórn kærða talið það skyldu sína að setja reglu sem verndaði fjármuni félagsfólks þess og tryggði að réttur úr sjóðnum væri óyggjandi áður en til greiðslu kæmi. Í samræmi við fordæmi frá öðrum sjóðum krefjist kærði þess að læknisvottorð sé úr íslensku sjúkraskrárkerfi og á íslensku, svo starfsfólk sjóðsins geti sannreynt uppruna þess með óyggjandi hætti. Reglan beinist þannig ekki að fólki af ákveðnu þjóðerni eða þjóðernisuppruna, heldur eigi jafnt við um alla, þ. á m. íslenska félagsmenn sem leggi fram erlend vottorð. Á meðan ekki hafi verið komið upp sameiginlegum gagnagrunni þar sem unnt sé að staðfesta uppruna heilsufarsgagna sé ómöguleiki að sanna uppruna erlendra vottorða.
- Kærði telur að afstaða kærða feli ekki í sér mismunun á vinnumarkaði, sbr. 7. gr. laga nr. 86/2018. Kröfur sem félagið gerir séu formkröfur sem tryggja eigi jafnræði meðal félagsfólks kærða og komi í veg fyrir greiðslur sem ekki eigi rétt á sér. Afstaðan byggi á reynslu kærða og annarra stéttarfélaga í sömu stöðu. Reglan gildi jafnt um alla félagsmenn óháð þjóðerni og miði við að vernda lögmæta hagsmuni á hlutlausan hátt, en aðrar aðferðir eða vægari úrræði hafi ekki fundist til að ná markmiðinu.
- Þá bendir kærði á að allir sem unnið hafi á íslenskum vinnumarkaði geti nálgast læknisvottorð í íslensku heilbrigðiskerfi, en heilsugæslan bjóði t.d. upp á símatíma þar sem nálgast megi læknisvottorð auk þess sem boðið sé upp á að nálgast heilsugæsluna með rafrænum hætti, en með því megi uppfylla formkröfu kærða um íslenskt læknisvottorð.
NIÐURSTAÐA
- Mál þetta snýr að því hvort kærandi hafi sætt mismunun í skilningi 1. mgr. 7. gr. laga nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, er honum var synjað um viðurkenningu á rétti til greiðslu úr sjúkrasjóði kærða á þeim grundvelli að kærandi hafi framvísað erlendu læknisvottorði til sönnunar á veikindum sínum en ekki vottorði sem gefið hafi verið út á Íslandi.
- Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, m.a. laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, og um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laganna tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint samkvæmt framansögðu og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna teljist hafa verið brotin.
- Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018 kemur fram að lögin gildi um jafna meðferð einstaklinga á vinnumarkaði óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu, m.a. hvað varðar ákvarðanir í tengslum við laun, önnur starfskjör og uppsagnir. Samkvæmt 2. gr. laganna er markmið þeirra að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga á vinnumarkaði óháð þeim þáttum sem um getur í 1. mgr. 1. gr. laganna. Í 7. gr. laganna er fjallað um almennt bann við mismunun og í 1. mgr. kemur fram að hvers kyns mismunun á vinnumarkaði, hvort heldur bein eða óbein, vegna einhverra þeirra þátta sem um getur í 1. mgr. 1. gr. sé óheimil.
- Í d-lið 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018 er kveðið á um að lögin gildi um jafna meðferð einstaklinga á vinnumarkaði óháð m.a. þjóðernisuppruna, svo sem hvað varðar þátttöku í samtökum launafólks, þ.m.t. þau réttindi sem þau veita félagsmönnum, en með þjóðernisuppruna er vísað til sameiginlegs uppruna hóps fólks sem getur verið sameiginlegur landfræðilegur uppruni, sameiginleg saga eða menning eða sameiginlegt tungumál.
- Samkvæmt lögunum er hvers konar mismunun á vinnumarkaði, hvort sem er bein eða óbein, vegna þátta sem kveðið er á um í 1. mgr. 1. gr. óheimil. Með beinni mismunun er átt við það þegar einstaklingur fær óhagstæðari meðferð en annar vegna nefndra þátta, en með óbeinni mismunun er átt við tilvik þar sem skilyrði, viðmið eða ráðstöfun komi verr við einstakling vegna þátta sem vísað er til í 1. mgr. 1. gr., samanborið við aðra einstaklinga, nema að slíkt sé unnt að réttlæta á málefnalegan hátt með lögmætu markmiði og aðferðir til að ná slíku markmiði séu viðeigandi og nauðsynlegar. Í því skyni að sýna fram á að skilyrði, viðmið eða ráðstöfun feli ekki í sér óbeina mismunun verður hún að vera réttlætanleg á málefnalegan hátt. Sé það raunin verður jafnframt að sýna fram á að aðgerðir sem nýttar eru til að ná því markmiði sem stefnt er að séu viðeigandi og nauðsynlegar.
- Svo sem að framan er rakið var umsókn kæranda um sjúkradagpeninga hafnað á þeim grundvelli að kærði viðurkenndi ekki erlend vottorð, í þessu tilviki frá […], sem fylgdu umsókn og staðfesta áttu veikindi kæranda vegna umsóknar um sjúkradagpeninga. Af hálfu kæranda er m.a. vísað til þess að það að viðurkenna ekki erlend læknisvottorð feli í sér mismunun í skilningi 1. mgr. 7. gr. laga nr. 86/2018, en fólk með annan þjóðernisuppruna en íslenskan sé útsettara fyrir mismunun af þessu tagi, enda sá hópur sem dvelst og fer oftar á annan dvalarstað vegna fjölskyldutengsla og uppruna. Vísar kærandi og til ríkrar skyldu samkvæmt EES-samningnum til að viðurkenna erlend læknisvottorð.
- Fyrir liggur að synjun kærða sem á reynir í máli þessu studdist við verklagsreglur sjúkrasjóðs hans þess efnis að einungis væri tekið við fullgildum læknisvottorðum á íslensku. Í svörum kærða í málinu er á það bent að reglan gildi fyrir alla félagsmenn óháð þjóðernisuppruna og beinist þannig ekki að fólki af ákveðnu þjóðerni eða þjóðernisuppruna. Að þessu athuguðu telur nefndin að fyrrgreind regla geti ekki talist bein mismunun á grundvelli þjóðernisuppruna í skilningi 1. mgr. 7. gr., sbr. 2. tölul. 3. gr. laga nr. 86/2018.
- Kemur þá til skoðunar hvort verklagsregla kærða og synjun hans geti talist óbein mismunun í skilningi 3. tölul. 3. gr., þ.e. að um sé að ræða skilyrði, viðmið eða ráðstöfun sem komi verr við kæranda, sem er af […] þjóðernisuppruna, samanborið við fólk af íslenskum þjóðernisuppruna. Að mati nefndarinnar verður að líta til þess að almennt megi telja það torsóttara fyrir aðila af erlendum þjóðernisuppruna, sem veikist erlendis, að afla íslensks læknisvottorðs, en íslenskan aðila. Verður ekki fram hjá því litið að íslenskukunnátta, fjölskyldutengsl og/eða félagsnet, sem almennt má ætla að aðilar af íslenskum þjóðernisuppruna búi yfir, geri þeim hægara um vik að afla íslensks læknisvottorðs, veikist þeir erlendis, heldur en þegar aðili af erlendum þjóðernisuppruna er í sömu stöðu. Að öllu framangreindu athuguðu verður því fallist á með kæranda að umrætt skilyrði kærða komi að jafnaði verr við einstaklinga af erlendum þjóðernisuppruna samanborið við einstaklinga af íslenskum þjóðernisuppruna sem geti talist óbein mismunun í skilningi 3. tölul. 3. gr. laga nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði.
- Kemur þá til álita hvort umrædda kröfu kærða, um íslenskt læknisvottorð, megi réttlæta á málefnalegan hátt, krafan feli í sér lögmætt markmið, og að aðferðin til að ná markmiðinu sé viðeigandi og nauðsynleg, samkvæmt 3. tölul. 3. gr. laga nr. 86/2018. Í athugasemdum kærða til kærunefndar kemur fram að fram til vors 2024 hafi kærði tekið við vottorðum erlendis frá sem fullnægjandi sönnun á veikindum, í góðri trú um uppruna þeirra og vottun veikinda. Kærði bendir hins vegar á að engin kerfi séu til staðar hérlendis til að sannreyna uppruna erlendra heilbrigðisvottorða. Á árinu 2023 hafi komið upp mál þar sem grunur hafi kviknað hjá starfsmenntasjóðum innan ASÍ að erlend vottorð, skírteini og reikningar sem framvísað hafði verið, hafi reynst falsaðir. Í framhaldi af þessu, eða á árinu 2024, hafi stjórn kærða talið það skyldu sína að tryggja að réttur til greiðslu úr sjóðum félagsins væri sannaður með óyggjandi hætti áður en til greiðslu kæmi. Hafi kærði þá farið að fordæmi margra félaga innan ASÍ og krafist þess að læknisvottorð séu upprunin úr íslensku heilbrigðiskerfi, og á íslensku, svo unnt sé að staðreyna uppruna þeirra.
- Við skilgreiningu á mismunun í ákvæði 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018 er til þess að líta að við undirbúning setningu laganna var höfð að leiðarljósi tilskipun 2000/43/EB um framkvæmd meginreglunnar um jafna meðferð manna án tillits til kynþáttar eða þjóðernis, að því er varðar réttindi og skyldur á vinnumarkaði, og tilskipun ráðsins 2000/78/EB um almennar reglur um jafna meðferð á vinnumarkaði og í atvinnulífi. Í janúar árið 2003 samþykkti ríkisstjórnin að gæta skyldi efnislegs samræmis í íslenskum rétti og þeim rétti er gilti innan Evrópusambandsins á grundvelli umræddra tilskipana, enda þótt efni þeirra ætti ekki formlega undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Var því ekki um eiginlega innleiðingu á tilskipununum að ræða í íslenskan rétt heldur var ætlunin að tryggja efnislegt samræmi í íslenskum rétti og þeim rétti sem gildir innan Evrópusambandsins á grundvelli umræddra tilskipana. Verður því að taka tillit til tilskipananna við túlkun á ákvæðum laganna, og með tilliti til niðurstaðna Evrópudómstólsins að því er nefnd álitaefni varðar, sbr. til hliðsjónar dóma Hæstaréttar í málum nr. 55/2024 og 32/2025. Í því sambandi er haft í huga að í tilskipun 2000/43/EB segir, að því er varðar óbeina mismunun, að hún sé óheimil, nema að ákvæði, viðmið eða framkvæmd sé hlutlægt réttlætanlegt með lögmætu markmiði og úrræðin til að ná því markmiði séu viðeigandi og nauðsynleg.
- Af hálfu kærða er því teflt fram sem meginrökum, að því er varðar höfnun á viðurkenningu erlendra vottorða, að starfsmenn sjúkrasjóðs kærða hafi takmarkaða kosti við að ganga úr skugga um að nefnd vottorð séu efnislega rétt og staðfesti veikindi og að útgefandinn sé bær um að votta slík atriði samkvæmt íslenskum lögum. Kærði vísar í þessu sambandi m.a. til 8. gr. laga nr. 19/1979 sem segi að vinnuveitandi geti ávallt krafist þess að starfsmaður sanni veikindi sín með læknisvottorði og á sama hátt geri allir sjúkrasjóðir þá kröfu að veikindi séu sönnuð. Slík vottorð þurfi að uppfylla þær kröfur sem gerðar séu í lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, lögum nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, og í lögum nr. 34/2012, um heilbrigðisstarfsmenn. Í 19. gr. síðastnefndu laganna segi að heilbrigðisstarfsmönnum beri að gæta varkárni, nákvæmni og óhlutdrægni við útgáfu vottorða, álitsgerða, faglegra yfirlýsinga og skýrslna og votta það eitt er þeir vita sönnur á og er nauðsynlegt í hverju tilviki. Þetta sé nánar útfært í reglugerð nr. 82/2025, um vottorð, álitsgerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur heilbrigðisstarfsmanna, en þar sé skýrt kveðið á um hvernig útgáfu vottorða skuli háttað en hérlendis sé það læknir sem votti óvinnufærni viðkomandi starfsmanns samkvæmt nánar tilgreindum reglum. Þá sé ljóst að læknar hér á landi sæti m.a. eftirliti embættis landlæknis, sbr. m.a. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 41/2007. Á engan hátt sé almennt tryggt, hvorki vegna vottorða sem gefin séu út á EES-svæðinu né annars staðar, að sambærilegt eftirlit sé með útgefanda heilbrigðisvottorða.
- Um skyldu atvinnurekenda til að greiða í sjúkrasjóð stéttarfélaga er samið í almennum kjarasamningum á vinnumarkaði hér á landi. Stéttarfélög, eins og kærði, teljast vera frjáls félagasamtök sem lúta sérstakri stjórn, sem ber almenna ábyrgð á fjárhagslegum þáttum í rekstri þeirra, þ.m.t. að gæta að fjárhagslegum hagsmunum félagsmanna vegna sjúkrasjóðs. Í því felst bæði almennt og sértækt eftirlit með umsóknum um styrki úr sjúkrasjóðum og þeim gögnum sem slíkum umsóknum fylgir.
- Að mati nefndarinnar er ekki að finna í íslenskum rétti reglu um samræmda viðurkenningu erlendra læknisvottorða. Í því samhengi verður ráðið af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 987/2009 frá 16. september 2009 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 883/2004 um samræmingu almannatryggingakerfa, sem tekin hefur verið upp í EES-samninginn, sbr. 8. tölul. 27. gr., að við beitingu 1. mgr. 21. gr. grunnreglugerðarinnar skuli einstök atriði vottorðs um óvinnufærni hins tryggða, sem gefið er út í öðru aðildarríki á grundvelli niðurstaðna læknis eða stofnunar um heilsufar, hafa sama lagalegt gildi og vottorð sem gefið er út í lögbæru aðildarríki. Hefur og framkvæmd að því er þetta varðar (sbr. áður reglugerð nr. 574/72/EB) verið sú, að því er slík erlend læknisvottorð varðar, að það sé atvinnurekanda en ekki launamanns að sanna svik eða misnotkun, sé gildi vottorðs dregið í efa í ákveðnu tilviki, sbr. dóm Evrópudómstólsins frá 2. maí 1996 í máli C-206/94 (Brennet AG gegn Vittorio Palletta). Á hinn bóginn er til þess að líta að nefnd reglugerð EB gildir á sviði almannatrygginga, sbr. 64. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, sem kveður á um innleiðingu nefndra tilskipana í íslenskan rétt. Af þeirri innleiðingu verður ekki ráðið að nefnd regla um samræmda viðurkenningu læknisvottorða eigi við á öðrum sviðum, sem ekki heyra undir reglugerðina. Þá er þess og að geta að sérstaklega er kveðið á um það í 3. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, að lögin gildi ekki um réttindi og þjónustu innan opinberra kerfa, svo sem um réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar o.fl. Að áliti kærunefndar verður því ekki lagt til grundvallar, með vísan til EES-réttar á nefndu sviði almannatrygginga, að af þeim ástæðum sé skylt að viðurkenna erlend læknisvottorð hjá sjúkrasjóði kærða.
- Samkvæmt 3. tölul. 3. gr. laga nr. 86/2018 telst óbein mismunun ekki fela í sér brot á lögunum ef unnt er að réttlæta hana á málefnalegan hátt með lögmætu markmiði og að aðferðirnar til að ná markmiðinu séu viðeigandi og nauðsynlegar. Sú ákvörðun kærða að gera kröfu um að læknisvottorð séu upprunnin frá Íslandi en ekki erlendis frá hefur það markmið að vernda fjármuni sjóðsins og tryggja að sjóðfélagar fái réttmætar greiðslur úr honum. Slíkt markmið verður, eins og hér stendur á, að teljast lögmætt og málefnalegt.
- Við mat á því hvort krafan um íslensk vottorð gangi lengra en nauðsyn krefur verður að líta til þeirra raunhæfu úrræða sem kærði hefur til eftirlits. Sjúkrasjóður kærða, eins og annarra stéttarfélaga, starfar á einkaréttarlegum grundvelli. Engin alþjóðleg kerfi eða samtengdir gagnagrunnar eru til staðar sem gera starfsmönnum sjóðsins kleift að sannreyna uppruna og efni erlendra læknisvottorða með skjótum og öruggum hætti. Því má fallast á það með kærða að möguleiki á virku eftirliti starfsmanna kærða með vottorðum og útgefendum þeirra erlendis sé almennt mun takmarkaðri en vegna læknisvottorða sem gefin eru út hér á landi.
- Með hliðsjón af framangreindu verður að telja að möguleiki á virku eftirliti með útgefanda og útgefnum vottorðum þeim sem um ræðir í máli þessu sé takmarkaður við mat á hverju og einu vottorði, og gildir þá einu þó svo að ekki sé í máli þessu sérstakur grunur um misferli. Þá verður ekki séð að kærða teljist fært, hvorki almennt né í nefndu tilviki, að afla staðfestingar á uppruna eða inntaki vottorða sem gefin eru út í […] með sama hætti og unnt er að hafa eftirlit með slíkum vottorðum útgefnum hér á landi. Fallast má á það með kærða.
- Að þessu gættu telur nefndin að sú óbeina mismunun sem kærandi sætti í máli þessu vera réttlætanlega í skilningi ákvæða laga nr. 80/2018. Braut kærði því ekki gegn ákvæðum laganna í máli þessu.
- Uppkvaðning úrskurðar í málinu hefur tafist umfram þann tveggja mánaða frest sem nefndin hefur til að úrskurða í máli eftir að gagnaöflun í því er lokið samkvæmt 5. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála. Er ástæða þess einkum mikill fjöldi mála sem er til meðferðar hjá nefndinni, svo og breytingar á vistun hennar og starfsmannahaldi.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Kærði, S, braut ekki gegn 1. mgr. 7. gr., sbr. 3. tölul. 3. gr. og d-lið 1. mgr. 1. gr. laga nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði, með synjun á viðurkenningu læknisvottorða sem kærandi framvísaði vegna umsóknar um greiðslu úr sjúkrasjóði kærða.
Ari Karlsson
Andri Árnason
Maren Albertsdóttir