Úrskurður vegna stjórnsýslukæru: Síðbúinn skil ársreiknings
Hinn 20. mars 2025, var í atvinnuvegaráðuneytinu
kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:
Stjórnsýslukæra
Þann 23. mars 2024 barst ráðuneytinu erindi [A] (hér eftir kærandi) f.h. [B] ehf. kt. […] (hér eftir félagið), þar sem borin er fram kæra vegna ákvörðunar ársreikningaskrár hjá ríkisskattstjóra (hér eftir ársreikningaskrá) frá 1. júlí 2024 um að hafna beiðni um niðurfellingu stjórnvaldssektar sem ársreikningaskrá lagði á félagið, dags. 3. október 2023, þar sem ársreikningi fyrir reikningsárið 2022 hafði ekki verið skilað.
Stjórnsýslukæran er byggð á 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 (hér eftir stjórnsýslulög).
Forsendur og niðurstaða
Félagið var afskráð 4. febrúar 2025. Félagið hefur því ekki lögvarða hagsmuni af niðurstöðu ráðuneytisins. Með vísan til þess sem að framan greinir er það niðurstaða ráðuneytisins í málinu að vísa frá kæru á ákvörðun ársreikningaskrá. Þá er vakin athygli á að úrskurðurinn verður einungis sendur með rafrænum hætti, nema annars sé óskað.
Úrskurðarorð
Kæru á ákvörðun ársreikningaskrár ríkisskattstjóra, dags. 1. júlí 2024, um að hafna beiðni um niðurfellingu stjórnvaldssektar er vísað frá.