Stök aðgerð

Almennar aðgerðir

2. Heildstætt mat á kostnaði vegna kynferðislegs ofbeldis gegn börnum og ungmennum

Unnið verði heildstætt mat á beinum og óbeinum samfélagslegum, hagrænum og efnahagslegum kostnaði vegna kynferðislegs ofbeldis gegn börnum og ungmennum á Íslandi. Lagt verði mat á heildarkostnað vegna áhrifa á heilbrigðiskerfi, félagsþjónustu og menntakerfi, auk kostnaðar vegna áhrifa á lífsgæði, atvinnuþátttöku og framleiðni í samfélaginu. Niðurstöður verði greindar eftir kyni og nýtist við stefnumótun, forgangsröðun verkefna og úrræða og eflingu forvarna.

Markmið: Draga fram skýra mynd af raunkostnaði samfélagsins vegna kynferðislegs ofbeldis gegn börnum og ungmennum á Íslandi.

Mælikvarði: Skýrsla með niðurstöðum úr mati á samfélagslegum, hagrænum og efnahagslegum kostnaði kynferðislegs ofbeldis gegn börnum og ungmennum liggi fyrir eigi síðar en í lok árs 2029.

Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.

Ábyrgðaraðili: Dómsmálaráðuneyti.

Tímarammi: 2026–2029.

Staða aðgerðar:

Dómsmálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið hafa hafið vinnu við samstarfsverkefni um heildstætt mat á kostnaði vegna kynferðislegs ofbeldis gegn börnum og ungmennum. Vinna er hafin við útfærslu á stjórn verkefnisins og í framhaldi af því hefst undirbúningur verkefnisins með afmörkun umfangs þess, kortlagningu viðeigandi gagna og vinnu við aðferðafræðilegan undirbúning.

Staða verkefnis

Hafið
Var efnið hjálplegt?